tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar atvinnufyrirtækja.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Þetta eru einmitt spurningar sem við verðum að spyrja okkur. Varðandi það að hér sé ekki úrræði um að héraðsdómur þurfi sérstaklega að meta hvort fyrirtæki sé líklegt til að hafa burði til þess að komast í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu þá er það vegna þess að við viljum að fyrirtækin geti komist hratt í skjól til að flýta fjárhagslegri endurskipulagningu. Fyrirtækið á að ráðgast við aðstoðarmann sinn á þeim þremur mánuðum sem það fær fyrst og síðan verður það metið að þeim tíma liðnum hversu líklegt fyrirtækið er til að ná árangri og þá hægt að meta betur hvað eigi að gera. Fyrirtækið verður þá að nýta þessa þrjá mánuði vel og ef það vill framlengingu eftir þrjá mánuði getur lánardrottinn komið með athugasemdir sínar á þeim tímapunkti. Ég bind vonir við að það verði niðurstaðan að þetta flýti frekar fyrir fjárhagslegri endurskipulagningu og flýti fyrir því að fyrirtæki verði stöndug. Sum fyrirtæki munu geta nýtt þessa þrjá mánuði ansi vel til að átta sig á stöðu sinni og sjá horfur. Önnur fyrirtæki geta líka nýtt þá mánuði vel en þurfa þó einhverja framlengingu til að sjá hvernig eigi að hátta þessu áfram og þurfa á eitthvað lengra skjóli að halda en í bara þessa þrjá mánuði. En með því að matið fari fram þar er bæði verið að reyna að flýta fyrir endurskipulagningunni og einfalda ferlið svo fyrirtæki komist fyrr í skjól og matið hjá héraðsdómi er svo einungis á því hvort afleiðingar Covid hafi haft áhrif á stöðu fyrirtækisins.