150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

atvinnuleysistryggingar.

812. mál
[20:24]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka svörin. Ég átta mig á tilgangi atvinnuleysisbóta en ég bara velti því á sama tíma fyrir mér hvort við séum ekki að horfa á svo gjörbreyttar aðstæður að við þurfum að endurhugsa og skoða hvort núverandi skilyrði fyrir atvinnuleysisbótum séu dálítið að binda hendur fólks og hefta okkur í framförum. Við horfum hugsanlega fram á gjörbreyttan vinnumarkað sem gæti staðið að mun fleiri hlutastörfum eða tilfallandi verkefnum, Gigg-hagkerfið og allt þetta, að við séum ekki að binda hendur fólks of mikið til að það geti prufað sig áfram á þessum breytta vinnumarkaði. En nóg um það í bili.

Ég fagna því að einhver vinna sé í gangi, að verið sé að skoða þessi mál, og ég ætla bara að spyrja hvort við megum ekki vera með í þeirri vinnu á einhvern hátt. Þá er ég að spyrja ráðherra hvort hann sé opinn fyrir því að hleypa fleiri röddum að þeirri vinnu og kannski hafa okkur aðeins með í ráðum. Það þarf ekkert að vera neitt hættulegt, það gæti eitthvað jákvætt komið út úr því, það gætu verið fullt af góðum hugmyndum hjá okkur í velferðarnefnd og eflaust myndi það bara hjálpa. Í ljósi þess að ríkisstjórnin hefur ekkert verið neitt ofboðslega opin fyrir því að hleypa okkur að spyr ég hæstv. ráðherra, ég veit að hann hefur verið mjög duglegur að upplýsa okkur um þá vinnu sem er í gangi í ráðuneytinu, hvort hann sé opinn fyrir því að hafa okkur hreinlega aðeins með í þessari mikilvægu vinnu.