150. löggjafarþing — 105. fundur,  19. maí 2020.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

706. mál
[14:12]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Logi Einarsson) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019, um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn, um fjármálaþjónustu.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Ernu Hjaltested frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019 frá 14. júní 2019 um breytingu á IX. viðauka, um fjármálaþjónustu, við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins frá 25. nóvember 2015 um greiðsluþjónustu á innri markaðnum, um breytingu á tilskipunum og reglugerðum um niðurfellingu á tilskipun og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar frá 23. júní 2017 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir samstarf og upplýsingaskipti á milli lögbærra yfirvalda að því er varðar neytingu greiðslustofnana á staðfesturétti og frelsi til að veita þjónustu.

Þetta er ekki auðskilið eftir svona upplestur en áhugasömum er bent á að kynna sér málið nánar í prentuðu formi.

Framsetning tillögunnar telst að mati meiri hlutans í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála og þess vegna leggur meiri hluti nefndarinnar til að tillagan verði samþykkt. Undir álitið skrifa Sigríður Á. Andersen, Logi Einarsson, Ari Trausti Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.