150. löggjafarþing — 105. fundur,  19. maí 2020.

almannatryggingar.

437. mál
[14:33]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég verð að koma hingað upp til að taka undir með kollega mínum í velferðarnefnd, Guðmundi Inga Kristinssyni. Ég ritaði ekki undir nefndarálitið. Ekki af því að ég væri á móti málinu, það var aðallega vegna mótþróa í mér gagnvart almannatryggingakerfinu yfir höfuð og öllum þeim skilyrðum og skerðingum sem þar eru, sem ég er gjörsamlega á móti. Ég hef of oft á tíma mínum í velferðarnefnd og á þingi orðið vitni að því sem gerist þegar við komum með frumvörp til að reyna að bæta eða laga almannatryggingakerfið á einhvern hátt til að auka réttindi fólks innan kerfisins. Oft hefur það einhverjar afleiðingar sem enginn sá fyrir af því að kerfið er svo gríðarlega flókið.

Hvernig gengur það upp í lýðræðissamfélagi að vera með kerfi sem á að þjónusta fólk sem skilur ekki einu sinni almennilega hverjar reglurnar eru? Ég tel að við þurfum að taka kerfið og endurskoða það heildrænt með það í huga að festa fólk ekki í fátæktargildru með skilyrðum og skerðingum, heldur frelsa það, veita því öryggisnet, byggja gólf fyrir fólk til að standa á svo það geti lifað og dafnað í samfélaginu á sínum forsendum. Við þurfum að vera með almannatryggingakerfi sem mætir fólki þar sem það er.

Þetta var það helsta. Ég skil að flestar eða allar umsagnir með þessu máli hafi verið jákvæðar og ég fagna því auðvitað að verið sé að lagfæra þarna lög og aðstoða fólk og stend alls ekki gegn því. En ég myndi vilja sjá að við tækjum þetta kerfi algjörlega í gegn og skoðuðum það heildrænt.