stimpilgjald.
Herra forseti. Þetta mál sem við greiðum nú atkvæði um er kannski ekki að efninu til eitt af stóru málunum en þetta er risastórt mál vegna þess að það segir sögu um forgangsröðun ríkisstjórnar, segir sögu um forgangsröðun Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem telja á þessum tímum af öllum tímum brýnt verkefni að lækka enn frekar álögur á útgerðina. Það er fínt að lækka tryggingagjald á útgerðina á sama tíma og hún er lækkuð á aðra, á heimili, á fyrirtæki og aðra þá sem eiga hagsmuna að gæta.
Viðreisn hefur ítrekað lagt fram mál um lækkun tryggingagjalds fyrir alla. Málið um afnám í skrefum mál mun líklegast deyja drottni sínum. Við hefðum kannski átt að hafa það tengdara sérhagsmunum þeim sem ríkisstjórnin styður.
Ég er með óbragð í munninum yfir að vera ekki á rauða takkanum yfir þessari ótrúlegu birtingarmynd en þetta er skattalækkun (Forseti hringir.) og ég mun sitja hjá.