leiðsögumenn.
Herra forseti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sambærilegri fyrirspurn er beint að ráðherranum en að mínu mati er vert að skoða þessi mál aftur. Þó að ferðaþjónustan sé í mikilli lægð um þessar mundir er engum blöðum um það að fletta að sá vöxtur sem hefur átt sér stað í greininni eftir hrun hefur verið lyftistöng fyrir hagkerfi landsins og fært okkur aukin lífsgæði. Það er kostur að þó að dreifing ferðamanna hafi síður en svo verið jöfn um landið má sjá jákvæð áhrif ferðaþjónustunnar hringinn í kringum landið okkar. Við kringumstæður sem við búum nú við gefst okkur tækifæri til að ræða hvernig ferðaþjónustu við viljum hafa hér á landi í framhaldinu.
Um er að ræða margþætta og fjölbreytta atvinnugrein og að þessu sinni vil ég ræða um mikilvæga starfsstétt innan hennar, leiðsögumennina okkar. Í mínum huga er tímabært að gera þeirri stétt hátt undir höfði með því að lögvernda starfsheitið leiðsögumaður. Að mínu mati snýst þetta fyrst og fremst um gæði þjónustunnar og að þeir sem starfa í greininni geri það á jöfnum grundvelli og að sömu kröfum uppfylltum. Við höfum ekki skilgreint fyrirbærið leiðsögn og mér finnst vert að skoða hvort skilgreina megi hugtakið. Við þekkjum að til er Evrópustaðall um leiðsögunám sem við höfum samþykkt en ekki um leiðsögnina sem slíka.
Í svari við fyrirspurn sem hv. samþingsmaður minn, Ari Trausti Guðmundsson, var með til hæstv. ráðherra fyrir tveimur þingum síðan eða svo ræddi hæstv. ráðherra m.a. um Vakann og hvort innleiða mætti hann með öðrum hætti. Mér vitanlega hefur það ekki verið gert og ég tek undir að það er hægt að velta fyrir sér hvort hægt sé að stytta þeim leið sem hafa verið með leiðsögn til fjöldamargra ára, verið kannski í gegnum tíðina á sínu svæði en ekki hlotið þá menntun sem gerð er krafa um. Kannski væri hægt að stytta þeim einhverja leið.
Stétt leiðsögumanna er mjög illa stödd þegar kemur að þeim úrræðum sem við höfum reynt að búa til, ekki það að lögverndun myndi endilega skipta þar máli en þó gæti það verið. Ferðamennska er auðlindanýting og auðlindin sem við nýtum í ferðamannabransanum á Íslandi er náttúran okkar. Öll auðlindanýting krefst réttrar kunnáttu og ber að framkvæma skynsamlega með sjálfbærnihugsun að leiðarljósi. Í því ljósi tel ég afar mikilvægt að þeir sem starfa á Íslandi við að kynna náttúru landsins hafi m.a. viðeigandi þekkingu svo ekki skapist hætta á að gengið sé um of á umhverfi og lífríki. Sú þekking er ekki síður mikilvæg en þekking á sögu og menningu þjóðarinnar.
Mörg önnur ríki hafa farið þá leið að með erlendum leiðsögumanni sem kemur til þeirra (Forseti hringir.) þurfi heimamaður að vera með í för og ég spyr hæstv. ráðherra til viðbótar hvort ástæða sé til að hafa með íslenskan leiðsögumann sem hafi þá hlotið til þess réttindi.