150. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2020.

aðgerðir gegn stafrænu kynferðisofbeldi.

570. mál
[16:55]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið og þeim þingmönnum sem blönduðu sér í umræðurnar fyrir þeirra innlegg. Ég fagna mjög að það skuli vera búið að stíga markviss skref í þessu verkefni. Mig langar að beina spurningu til forsætisráðherra: Erum við að tala um eitt eða fleiri mál frá dómsmálaráðherra á næsta hausti eða er það kannski ekki alveg orðið skýrt?

Mig langar svo að taka sérstaklega upp hugtakið kynferðisleg friðhelgi sem ég held að sé mjög mikilvægt og bara hugtakið eitt geti aukið skilning okkar á og virðingu fyrir því að hver og ein manneskja þarf að njóta kynferðislegrar friðhelgi. Ég held að innleiðing á þessu hugtaki hjálpi okkur að berjast gegn stafrænu kynferðisofbeldi og fræða um mikilvægi þess að útrýma því.

Eins og hæstv. forsætisráðherra kom inn á er markviss vinna í þessum efnum liður í því að ná árangri í jafnréttismálum. Ef við ætlum að telja okkur áfram til forystu á heimsvísu í að vinna að jafnrétti verðum við að standa okkur á þessu sviði eins og öðrum, samhliða því að innleiða Istanbúl-samninginn að fullu og fleiri verkefnum á þessu sviði. Ég held að í baráttunni gegn ofbeldi höfum við kannski farið seinna af stað en ýmis önnur lönd en við eigum hins vegar, vegna árangurs í jafnrétti og á öðrum sviðum, að geta staðið okkur betur en margir aðrir. Og eins og ég sagði í umræðunni um (Forseti hringir.) þingsályktunartillöguna um forvarnir þá er fræðsluátakið sem fyrirhugað er afskaplega mikilvægt í þessari vinnu.