150. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2020.

tófa og minkur.

545. mál
[17:28]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Hér er rætt um refinn og þá er nauðsynlegt að minnast á uppeldisstöð umhverfisráðuneytisins fyrir refi í Hornstrandafriðlandinu. Það er gerningur síðan 1995 sem þjónar bara einum tilgangi, að valda sem mestum skaða á öllu fuglalífi á svæðinu, bjargfugli jafnt sem mófugli. Mófuglinn er nú horfinn úr friðlandinu. Refurinn flæðir síðan úr friðlandinu inn á önnur landsvæði, yfir í Djúp og austur með Ströndum þar sem eitt sinn var eitt af bestu rjúpnalöndum landsins. Þar er engin rjúpa í dag enda rjúpan eftirsótt fæða refs.

Rannsóknir í Bandaríkjunum og Svíþjóð sýna að ef stofnar rándýra eru friðaðir í þjóðgörðum verður óeðlilegur vöxtur í stofninum og dýrin fara að leita út fyrir þjóðgarðinn. Refurinn er mikil vá í æðarvarpi og öllu fuglalífi fyrir utan að vera dýrbítur. Það á að leggja af þessa friðunarstefnu á ref á Hornströndum og setja aukið átak í refaveiðar um allt land.