150. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2020.

tófa og minkur.

545. mál
[17:29]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég ætla að tjá mig örlítið um þetta mál. Refurinn var hérna þegar maðurinn kom til Íslands. Þegar landnámsmenn komu var refurinn fyrir, þetta er eina landspendýrið sem bjó á landinu. Blessaður refurinn hefur sinn tilverurétt. Hann hefur verið kallaður ýmsum nöfnum sem ég ætla ekki að þylja upp en mér þykir sérstaklega vænt um nafnið skolli.

Hann hefur alls ekki lifað í sátt og samlyndi við manninn hér á landi. Þeir hafa eldað saman grátt silfur alveg frá upphafi vegna þess að hann hefur lagst á búfénað bænda, þar á meðal æðarfugl, eins og hv. þingmaður nefndi áðan. Ég hef ekki tíma til að ræða minkinn en ég tel að það þurfi að stemma stigu við óheftri fjölgun refa hér á landi. Eitt af því sem ég vil beina til hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) er að koma skikki á greiðslur til þeirra sem eru að vinna þetta dýr.