150. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2020.

svifryk.

571. mál
[17:46]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég þakka málshefjanda og ráðherra fyrir innlegg þeirra í þessa umræðu. Það sem mig langar til að vekja athygli á er atriði sem hæstv. ráðherra kom inn á sem eitt af þeim atriðum sem gætu unnið gegn svifryksmengun. Ég gef mér að þá sé mest horft til höfuðborgarsvæðisins. Það er rykbinding gatna og hreinsun gatna. Það hefur verið töluverð gagnrýni á það hversu sjaldan þessum tveimur liðum hefur verið sinnt af hálfu Reykjavíkurborgar. Ég þekki ekki hvernig það er í nágrannasveitarfélögunum en reglulega eru fluttar fréttir af því að að langt sé á milli slíkra aðgerða.

Hefur hæstv. umhverfisráðherra átt einhverjar viðræður við Reykjavíkurborg um að fjölga þeim skiptum innan ársins sem götur eru beinlínis hreinsaðar með það í huga að draga úr svifryksmengun?