urðun úrgangs.
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa góðu umræðu. Samkvæmt lögum um meðhöndlun á úrgangi er það sveitarstjórn sem ákveður fyrirkomulag söfnunar á heimilis- og rekstrarafgangi í hverju sveitarfélagi. Það er því hverrar sveitarstjórnar að kveða á um það hvaða skyldur eru til að flokka úrgang. Leiðirnar sem eru farnar eru ólíkar og oft mikið ósamræmi í flokkun úrgangs milli sveitarfélaga hér í landi.
Fram kom í svari ráðherra til mín í febrúar í fyrra að ekkert yfirlit væri til um flokkunarkerfi sveitarfélaganna. Umhverfisstofnun fær ekki upplýsingar um umfang flokkunar til sín eða hvar flokkað er eða hvort yfirleitt. Álitsgerð ESB um hringrásarhagkerfið gerir ráð fyrir innleiðingu hér á landi í gegnum EES-samninginn.
Ég leyfi mér að varpa þeirri spurningu til hæstv. ráðherra hvernig miði í þessu efni. Er fyrirliggjandi yfirlit um það hvernig sveitarfélög standa að þessu máli (Forseti hringir.) eða hvernig þau hyggjast skipuleggja þennan mikilvæga umhverfisþátt?