150. löggjafarþing — 108. fundur,  25. maí 2020.

efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar.

[15:05]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Nýleg grein eftir hæstv. forsætisráðherra og viðtal í vefriti Progressive International vakti athygli mína. Þar segir hún m.a. að þótt vinstri menn í Evrópu greini á um margt sé það skylda þeirra á viðsjárverðum tímum að vinna saman að því að leita lausna. Jafnframt þurfi á tímum loftslagsbreytinga og efnahagslegs ójöfnuðar að marka djarfa og framsækna stefnu með félagslegt réttlæti, jafnrétti kynjanna, loftslagsmál og alþjóðlega samvinnu að leiðarljósi.

Þessu er ég hjartanlega sammála og það þarf kannski ekki að koma á óvart því að um þessi verkefni og skyldu vinstri flokka hef ég margoft rætt hér. Nú veit ég ekki hvort forsætisráðherra telur samstarf við Sjálfstæðisflokkinn líklegt til að ná þeim róttæku félagslegu og efnahagslegu breytingum sem hún taldi nauðsynlegar í greininni eða hvort hún telji Sjálfstæðisflokkinn jafnvel til framsækinna vinstri hreyfinga í Evrópu, eða hvort henni finnist þessi skylda vinstri flokka í Evrópu til að vinna saman að róttækum aðgerðum bara eiga við annars staðar en á Íslandi. En látum það vera og ræðum frekar ójöfnuðinn sem forsætisráðherra gerði að umtalsefni í greininni.

Í síðustu viku var slegið Íslandsmet í arðgreiðslu þegar ágóði af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar var afhentur nýrri kynslóð. Mun ríkisstjórnin leggja til stigvaxandi erfðafjárskatt, að ígildi hóflegs sparnaðar, t.d. einbýlishúss, bæri áfram 10% skatt en prósentan hækkaði til muna þegar um væri að ræða hundruð milljóna, milljarða, eða jafnvel meira en það, eða frumvarp um stóreignaskatt á aðila sem eiga fleiri hundruð milljónir króna í hreina eign, líkt og forsætisráðherra boðaði vissulega fyrir síðustu kosningar? Eru kannski uppi önnur áform og hver eru þau þá? Og ég er ekki að biðja um það sem þegar hefur verið tilkynnt.