efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þeim ágæta félagsskap, Progressive International, sem snýst um alþjóðlegt samstarf framsækinna afla í heimi þar sem við sjáum mikið bakslag víða, t.d. þegar kemur að réttindum fólks. Nægir þar að líta til næstu nágranna okkar í Evrópu og nýlegrar löggjafar í Ungverjalandi til að mynda um réttindi transfólks. Við höfum ekki verið á þeirri leið á Íslandi, sem betur fer, enda tel ég mjög mikilvægt að vinstri sinnaðir flokkar leiti allra leiða til að ná raunverulegum áhrifum. Þau höfum við séð birtast á þessu kjörtímabili þó að hv. þingmaður vilji ekki ræða þann árangur, til að mynda í nýlegum lögum um kynrænt sjálfræði, svo ég taki bara eitt lítið dæmi. Ég gæti nefnt mörg dæmi sem tengjast jafnrétti kynjanna, loftslagsbreytingum og jöfnuði.
Hv. þingmaður spyr hins vegar, eins og ég skil spurninguna eftir alllangan inngang, sérstaklega um þær fréttir sem hér voru í síðustu viku af því sem kallað var sumargjöf aldarinnar, þ.e. gjöf forsvarsmanna fyrirtækisins Samherja til barna sinna. Í fyrsta lagi tel ég að það væri mjög áhugavert að skoða hugmyndir um þrepaskiptan erfðafjárskatt, eins og ég hef áður sagt í svari við fyrirspurn hv. þingmanns um þau málefni. En í öðru lagi tel ég að við hv. þingmaður og fleiri formenn flokka berum ríka skyldu til þess að ljúka vinnu við nýtt auðlindaákvæði í stjórnarskrá. Ég rifja það upp að hér var spurt árið 2012 hvort fólk vildi sjá ákvæði um auðlindir í þjóðareign í stjórnarskrá og svaraði yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar því játandi. Sömu niðurstöður birtist í nýlegri skoðanakönnun sem formenn flokka á Alþingi létu gera. (Forseti hringir.) Ég tel að það sé í raun og veru undirstaða þess að við getum rætt auðlindanýtingu á Íslandi, (Forseti hringir.) að við undirstrikum þann rétt í stjórnarskrá.