opnun landsins gagnvart ferðamönnum.
Virðulegi forseti. Þjóðin hefur staðið saman sem einn maður til að vinna bug á Covid-19. Samstaða þjóðarinnar hefur verið grundvallarforsenda okkar góða árangurs. Þríeykið okkar góða og títtnefnda hefur upplýst þjóðina vel og skilmerkilega um allar aðgerðir og almenningur hefur síðan fylgt ráðgjöf og tekið takmörkunum á daglegu lífi. Það er mikilvægt að halda því til haga að takmarkanir, sumar hverjar á mannréttindum, þarf alltaf að rökstyðja. Frelsið á að vera normið, takmarkanir krefjast rökstuðnings. Við fögnum því að geta aftur hitt fólkið okkar, aftur faðmað vini okkar, farið í sund og að endurheimta okkar daglega veruleika, og kannski er hann einmitt dýrmætari en nokkru sinni áður. Stjórnvöld, og ég vil hrósa þeim, hafa hlustað á ráðleggingar sérfræðinga og notið stuðnings til að fara þá leið.
Nú liggur hins vegar fyrir sú pólitíska ákvörðun sem kynnt var af forsætisráðherra, að viðstöddum fimm öðrum ráðherrum ríkisstjórnarinnar, sem undirstrikar pólitíkina í þeirri ákvörðun, að opna landið aftur fyrir ferðamönnum hinn 15. júní nk. Það er lýðræðislegt hlutverk okkar í stjórnarandstöðunni að sýna aðhald, að spyrja spurninga, að hlusta á fólkið okkar sem við hittum öll utan þingsins. Við þurfum að krefja stjórnina svara. Þetta er stórt skref. Þetta er mjög mikilvægt skref sem við erum að stíga núna 15. júní. Það er skref sem speglar jákvæðan árangur okkar Íslendinga í baráttunni við veiruna en þjóðin þarf að fá svör við því hvert planið er í kjölfarið.
Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hver er stefnan? Hvenær verður hún kynnt og aðgerðaáætlunin varðandi 15. júní? Og það er margt sem hangir á þessari spýtu.