150. löggjafarþing — 108. fundur,  25. maí 2020.

opnum landsins gagnvart ferðamönnum.

[15:15]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og vil byrja á að segja að ég er mjög sammála henni um að það þarf alltaf að rökstyðja vel þær takmarkanir sem kynntar eru sem skerða frelsi fólks og eðlileg réttindi. Ég tel að okkur hafi tekist vel upp með það í íslensku samfélagi og vil vekja athygli á því hér að við höfum ekki gripið til jafn drastískra, fyrirgefið, herra forseti, ráðstafana og ýmis önnur ríki sem hafa til að mynda beitt útgöngubanni, svo dæmi sé tekið, sem er gríðarlega róttæk aðgerð, heldur höfum við lagt áherslu á mjög strangar sóttvarnaráðstafanir.

Það var umdeilt á sínum tíma þegar ákveðið var að halda skólastarfi gangandi í leik- og grunnskólum. Það var hins vegar að tillögu sóttvarnalæknis. Við erum meðal fárra ríkja sem ákváðu að fara þá leið að loka ekki skólum því að við töldum að þetta væri vel rökstudd tillaga og fylgdum henni.

Hvað varðar opnun landamæra var það kynnt sem ráðstöfun sem yrði með ákveðnum skilyrðum, þ.e. að við myndum annars vegar gera kröfu um sóttkví eða þá skimun á landamærum. Við sögðum líka skýrt þegar það var kynnt að ýmsar upplýsingar þyrftu að liggja fyrir áður en farið yrði af stað í aðgerðirnar og sögðum þá í raun: Hér er stefnan en af því að við viljum hafa allt eins gagnsætt og mögulegt er þá viljum við segja ykkur hvað það er sem þarf að liggja fyrir áður en við getum ráðist í það.

Varðandi áhættugreiningu Landspítala er mér sagt að henni hafi nú þegar verið skilað til heilbrigðisráðherra og á ráðherra, sem leitt hefur þetta verkefni, von á niðurstöðum vinnuhóps síðar í dag um það hvernig hægt sé að standa að skimuninni. Hagræn greining á mögulegri áhættu (Forseti hringir.) af því að opna landamærin með þessum hætti mun ekki liggja fyrir fyrr 1. júní. Þar sem ég hef boðað fund formanna flokkanna á morgun (Forseti hringir.) hafði ég hugsað mér að greina þeim frá því hvernig sú vinna stendur á þeim fundi þannig að allt sé eins gagnsætt og mögulegt er.