150. löggjafarþing — 108. fundur,  25. maí 2020.

Menntasjóður námsmanna.

329. mál
[19:47]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Helgi Hrafn Gunnarsson) (P):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar sem samanstendur einungis af þeim sem hér stendur, þótt ég hafi reyndar frétt í óspurðum fréttum áðan að fleiri séu sammála mér, sem ég fagna mjög. En fyrst verð ég að fjalla aðeins um málsmeðferð frumvarpsins. Að mínu mati hefði málið alveg mátt fá betri umfjöllun í allsherjar- og menntamálanefnd. Það var ýmislegt sem umsagnaraðilar fóru út í sem ekki var tekið á, hvorki í nefndaráliti meiri hlutans né í því sem ég flyt hér, og ég hef ekki tekið eftir því í nefndarálitum annarra. Reyndar hef ég ekki komist í að skoða alla vega eitt þeirra af mikilli dýpt sökum ástæðna sem ég ætla einnig að nefna. Mér finnst það til marks um ákveðið metnaðarleysi í þingstörfum almennt hvað lögð er mikil áhersla á að tikka í boxin og koma málum í gegn sem allra fyrst.

Þetta er stórt mál og mikilvægt mál. Fjölmargir hagsmunaaðilar sendu inn fjölmargar umsagnir með ansi mörgum tillögum og mér finnst að allsherjar- og menntamálanefnd hafi bara ekki fjallað nógu mikið um málið, enda greiddi ég ekki atkvæði með því að taka það út á sínum tíma. Málið var sett á dagskrá með afbrigðum vegna þess að of skammt var liðið frá því að breytingartillögum og nefndarálitum var dreift. En ég get ekki bara kennt einhverjum öðrum um það, kannski hefði maður átt að gera athugasemdir við það. Ég hafði reyndar orð á því á sínum tíma en það þótti ekki raunhæft að verða við því. Og svo í dag er þingfundur framlengdur inn í kvöldið til þess að geta klárað málið. Þótt minn skilningur sé sá, ég vona að það sé rétt, að þingfundur standi ekki lengur en til kl. 21 er það hvergi nálægt því að vera nóg til að ræða þetta mál þannig að ég býst fastlega við því að umræðan haldi áfram, enda fullt tilefni til.

Þetta nefni ég án tillits til þess hvað stendur í frumvarpinu sjálfu. Þetta er ágætismál, þetta er ágætisfrumvarp. 1. minni hluti leggur til að það sé samþykkt með breytingum sem eru lagðar til í sérstöku þingskjali. En mér finnst mikilvægt að nefna þetta vegna þess að mér finnst það vera löstur á Alþingi hvernig hlutirnir eru stundum trukkaðir áfram, af einskærum metnaði auðvitað, en að mínu mati ekki nógu mikilli nærgætni gagnvart þeim hagsmunaaðilum sem sendu inn allar þessar tillögur.

Nefndarálit 1., 2. og 3. minni hluta komu ekki fram fyrr en í dag, ég er ekki alveg með á hreinu hvenær, ég var á fundum sjálfur á þeim tíma, en einhvern tímann eftir hádegi, hygg ég, og það er ekki víst að allir hér inni eða úti í samfélaginu hafi fengið tækifæri til að kynna sér þau þótt ég átti mig á því að sennilega hafi þeir sem láta sig málið mestu varða sennilega gert það. En óháð því óska ég þess og vona að sátt sé um að taka málið til nánari umfjöllunar milli 2. og 3. umr. Þá vil ég einnig leggja sérstaklega til að fólk kynni sér minnihlutaálit 2. og 3. minni hluta.

Ég vil fyrst fjalla aðeins um álit meiri hlutans en það er í öllum meginatriðum gott. Tillögurnar sem þar eru lagðar fram eru jákvæðar að mínu mati. Það helsta sem ég myndi gagnrýna er að það taki ekki nógu mikið á þeim álitamálum sem þó voru uppi. Eitt dæmið er 12. gr., um upplýsingagjöf, en nefndin fjallaði um það atriði og mun ég gera grein fyrir því á eftir hvernig 1. minni hluti leggur til að kljást verði við það.

Meiri hlutinn leggur einnig til vaxtaþak sem kom mjög mikið til umræðu og er sú breyting mjög jákvæð. Meiri hlutinn lagði líka til breytingu um gjaldfellingu láns sem 1. minni hluti tekur einnig undir. Og frestun á endurgreiðslu sem var líka jákvæð tillaga, og síðan ýmis bráðabirgðaákvæði sem 1. minni hluti tekur einnig undir. Þau eru jákvæð. Sér í lagi má nefna þá ákvörðun að hækka aldur þeirra lánþega sem geta valið að endurgreiða námslán með tekjutengdum afborgunum úr 35 í 40 ára, enda verði áhrif þess metin þegar þau verða orðin ljós.

Það fyrsta sem ég vil fjalla um í áliti 1. minni hluta er framfærsla námsmanna. Þetta er að mínu mati það mikilvægasta og mér finnst það í raun og veru leiðinlegast að ekki hafi verið gert meira í því. Þetta kom margsinnis upp og kemur oft upp í umræðunni um námslán og stuðningskerfi við námsmenn, en það er þetta einfalda atriði sem maður hefði haldið að væri komið á hreint eftir alla umræðuna sem er: Eiga námslán að duga til framfærslu? Já eða nei. Ég veit ekki um neinn sem svarar þessari spurningu neitandi. Hingað koma upp þingmenn, þar á meðal hv. þm. Silja Dögg Gunnarsdóttir, sem segja: Já, þetta á að duga til framfærslu.

Nú höfum við reynslu af ákveðnum lagabálki og ákveðinni stofnun sem starfar samkvæmt þeim lagabálki, þ.e. LÍN, með tilheyrandi lögum. Við vitum öll hvernig þau ákvæði eru og við vitum alveg hvernig reynslan af því er. Hún er einfaldlega ekki nógu góð, virðulegi forseti. Námslán duga ekki til framfærslu og mér vitanlega er það ekki umdeilt. Með öðrum orðum, það er staðreynd. Sömuleiðis verður til ákveðinn vítahringur þegar námsmenn neyðast — ég undirstrika — neyðast til að vinna með námi sínu vegna þess að ofan á þetta eru ákveðin frítekjumörk sem skerða möguleika námsmanna til að fá lán yfir höfuð. Þetta veldur þeim vítahring að námsmenn þurfa að vinna enn meira með námi sínu. Það er auðvitað ekki nógu gott, virðulegi forseti, ef hugmyndin er sú að styðja námsmenn til að sinna námi sínu með þeim hætti sem þeir sjálfir vilja sinna.

Fyrsti minni hluti leggur til breytingu á 2. mgr. 2. gr. frumvarpsins um að þar komi nýr málsliður, svohljóðandi, með leyfi forseta: „Framfærslukostnaður skal aldrei vera lægri en sem nemur dæmigerðu neysluviðmiði samkvæmt útreikningum félagsmálaráðuneytis um neysluviðmið fyrir heimili á Íslandi.“

Þessi tillaga kom til eftir að 1. minni hluti rannsakaði hvernig hægt væri að koma inn í löggjöfina einhvers konar viðmiði án þess þó að festa beinlínis fasta krónutölu. Kemur í ljós að viðmiðið sem sjóðstjórn LÍN hefur haft hingað til miðar við grunnframfærslu eða grunnviðmið, minnir mig að það heiti, og það er annað en það dæmigerða. Það dæmigerða er hærra. 1. minni hlutinn, og fleiri, er þeirrar skoðunar að það að vera námsmaður eigi ekki sjálfkrafa að dæma mann til fátæktar þótt tímabundið sé, heldur eigi námsmenn að geta sinnt námi sínu án þess að þurfa að hafa fjárhagsáhyggjur, eins og kom fram við meðferð nefndarinnar í málinu að er mjög algengt. Margir námsmenn hafa beinlínis fjárhagsáhyggjur, jafnvel mjög miklar. Það gengur ekki, virðulegi forseti. Við eigum að laga það. Við lögum það með því að láta námslánin vera þannig að námsmenn geti notað þau sér til framfærslu.

Virðulegi forseti. Þetta er aðalatriðið. Mér þykir leitt að það sé ekki tekið, að mínu mati, nógu alvarlega af meiri hlutanum. Þetta er sama lagalega útfærslan og hefur verið við lýði hingað til og sjóðstjórn látin ákveða þetta, sem er ekki eitt og sér neitt vandamál nema það að við höfum þá reynslu að þetta dugar ekki. Við eigum að reyna að laga það þegar við fáum tækifæri til þess og hér er tækifærið. Ég vil líka nefna að 2. minni hluti hefur lagt til sömu lausn þó að hún sé orðuð örlítið öðruvísi en á engan efnislega frábrugðinn hátt.

Þá vil ég víkja að upplýsingagjöfinni í 12. gr. frumvarpsins. Þar er annað atriði sem hefði mátt vinna aðeins betur. Ríkisskattstjóri hafði þar áhyggjur af því að það væri allvíðtæk upplýsingaskylda á ríkisskattstjóra þar sem embættinu er gert skylt, þrátt fyrir stranga þagnarskyldu, að láta Menntasjóðnum eða innheimtuaðila námslána í té upplýsingar um lánþega, sem síðan það sama embætti er kannski ekkert endilega best í stakk búið til að meta nákvæmlega hverjar eiga að vera. Þetta er mjög óheppilegt og kemur stundum fyrir að stofnanir eru látnar meta eitthvað sem er óheppilegt að þær meti sjálfar. 1. minni hluti leggur til mjög einfalda breytingu á því þar sem skerpt er á hvaða upplýsingar það eru sem ríkisskattstjóra skuli vera skylt að láta Menntasjóðnum eða innheimtuaðila námslána í té, og það er um tekjur lánþega og tekjur maka og foreldra lánþega þegar við á.

Frumvarpið er aðeins óskýrara að þessu leyti. Við gerð nefndarálitsins fengum við ekki séð að það væri í frumvarpinu nein ástæða til þess að ríkisskattstjóra væri gert skylt að miðla frekari upplýsingum um þetta. Við leggjum til að þetta sé bara niðurnjörvað á þennan hátt og væntum þess að ef annmarkar séu á því verði vonandi meiri umræða um þetta tiltekna efni í hv. allsherjar- og menntamálanefnd milli umræðna, ja, nema aðrar útfærslur komi við 2. eða 3. umr.

Nú reyni ég, virðulegur forseti, að hafa þetta nokkurn veginn í réttri röð. Þá skal fjallað aðeins um námsstyrk. Það er jákvætt skref, að mati 1. minni hluta, að ætlunin sé að færa sig frá kerfi sem snýst að öllu leyti um lán og yfir í það að styrkja nema til náms, enda sem fyrr greinir styður 1. minni hluti málið. Þó að þetta fyrirkomulag kunni í sjálfu sér að fela í sér betrumbætur verður að líta til þess að ekki þarf háa vexti til að þeir éti upp ágóðann af niðurfellingu höfuðstólsins og útskrifaðir nemar verði því verr settir en ella. Undirstrikar þetta nauðsyn þess að vaxtaþak sé á lánum sem Menntasjóðurinn veitir. Því er fagnaðarefni að nefndin leggi til að vaxtaþak verði sett.

Þá verður heldur ekki litið fram hjá því að styrkur sem felur í sér 30% niðurfellingu höfuðstóls lána verður til lítils gagns ef nemendur neyðast til að halda áfram að vinna eins mikið með námi og raun ber vitni vegna lágrar framfærslu. Undirstrikar þetta mikilvægi þess að framfærsluviðmið geri nemendum kleift að sinna náminu án þess að þurfa að vinna of mikið meðfram náminu til að eiga í sig og á.

Þá bendir 1. minni hluti einnig á þá staðreynd að skilyrðin til að hljóta umræddan námsstyrk eru heldur þröng og gefa ekki þann sveigjanleika sem stór hluti nemenda þarfnast til að ljúka námi. Lánþegar þurfa að ljúka prófgráðu á þeim tíma sem skipulag náms gerir ráð fyrir samkvæmt 1. mgr. 14. gr. en hafa svigrúm til seinkunar í námi samkvæmt 3. mgr. sömu greinar. Staðreyndin er samt sú að með því að hafa tímarammana ósveigjanlega og því að gera ekki ráð fyrir fjölbreyttum aðstæðum námsmanna er unnið gegn markmiði frumvarpsins um að tryggja þeim sem falla undir lögin tækifæri til náms, án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti. Með því að fjarlægja rétt þeirra sem hverfa frá námi tímabundið til styrks eru möguleikar þeirra á að snúa aftur til náms skertir. 1. minni hluti leggur því til að umræddir tímarammar verði rýmkaðir.

Hvað varðar hlutfall niðurfellingar námsstyrks hafa umsagnaraðilar bent á að sá 30% afsláttur af námslánum sem lagður er til virðist grundvallast á þeim fjárveitingum sem löggjafinn hefur veitt til málaflokksins hingað til. Sambærilegur afsláttur í nágrannalöndum okkar sé hærri, til að mynda 40% í Noregi. 1. minni hluti tekur undir þau sjónarmið að íslensk stjórnvöld ættu að hafa metnað til að haga fyrirkomulagi námsstyrkja þannig að það standist alþjóðlegan samanburð, sérstaklega þegar kemur að nágrannalöndum okkar. Leggur 1. minni hluti því til að hlutfall niðurfellingar verði hækkað úr 30% í 40%. Þá er sömuleiðis sveigjanleikinn aukinn þar, eins og fyrr segir, í b–d-liðum 4. töluliðar í breytingartillögu 1. minni hluta.

Þá skal fjallað um framfærslustyrk vegna barna. Þau ágætu nýmæli eru í frumvarpinu að lánþegi sem þiggur námslán fái styrk til framfærslu barns. Hugmyndin með þessu er sú að þeir nemendur standi ekki verr að loknu námi en ella. Þetta er ágætisbreyting en hins vegar kom fram sú athugasemd að það væru ekki endilega allir aðilar sem væru með barn sem þyrftu í sjálfu sér á námslánum að halda, en hefðu hins vegar ríka þörf fyrir þennan framfærslustyrk vegna barna og gætu látið sér hann duga. Því leggur 1. minni hluti til að þessu verði breytt þannig að í stað þess að skilyrði verði háð því að lánþegi þiggi námslánið þá þurfi hann einungis að eiga rétt á námsláni. Þannig að nemandi sem hefur rétt á námsláni geti fengið þennan framfærslustyrk vegna barna.

Ein af þeim grundvallarbreytingum sem gerðar eru með frumvarpinu er sú að lánakjör eru markaðsvædd, en nemendum gefinn möguleiki á að hljóta námsstyrki í formi niðurfellingar á 30% hluta höfuðstólsins. Þó að námsstyrkir séu jákvætt skref verður ekki horft fram hjá því að markaðsvæðing lánskjara er ekki gallalaus lausn þar sem hún getur einnig haft neikvæð áhrif á kjör námsmanna. Með breytingunum eykst óvissa um kjör og endurgreiðslubyrði mjög, bæði vegna beinnar tengingar vaxtakjara við markaðsvexti og heimildar sjóðstjórnar til að ákvarða vaxtaálag til að standa undir væntum afföllum sjóðsins. Eitt helsta markmiðið með þessum breytingum er að geta komið í veg fyrir afföll af útlánum sjóðsins. Með því að leggja þetta vaxtaálag á lán Menntasjóðs er ábyrgðinni á afföllum lána velt frá ríkinu yfir á námsmenn sjálfa og þá sem hafa lokið námi. Slíkt getur haft neikvæð áhrif þegar efnahagskreppa blasir við, enda eru það þá lánþegar sem munu sitja uppi með þau auknu afföll sem fylgt geta slíkum áföllum.

Á móti kemur að breytingin hefur einnig tvímælalaus jákvæð áhrif á kerfið í heild að því leyti að veittir styrkir eru gagnsærri og auðveldara er að mæla árangur kerfisins. Sömuleiðis er mjög til bóta að námsmönnum sé í sjálfsvald sett hvort þeir vilji halda lánum sínum verðtryggðum eða gera þau óverðtryggð að námi loknu, en erfitt er að sjá hvernig hægt væri að haga þeirri breytingu án þess að markaðsvæða vaxtafyrirkomulag, a.m.k. með einhverjum hætti.

Að framangreindu sögðu styður 1. minni hluti þessa grundvallarbreytingu en áréttar mikilvægi þess að yfirvöld fylgist vel með áhrifum breytingarinnar.

Í þessu sambandi bentu margir umsagnaraðilar á mikilvægi vaxtaþaks og því fagnar 1. minni hluti tillögu meiri hlutans um að koma slíku á. Án slíks þaks ykist óvissan um framtíðina eftir nám svo gífurlega að hún væri til þess fallin að hafa veruleg neikvæð áhrif á möguleika og áhuga á námi með stuðningi Menntasjóðs, að mati 1. minni hluta.

Einnig var rætt um tekjutengda endurgreiðslu. Komu fram fjölbreytt sjónarmið um það frá umsagnaraðilum en í ljósi tillagna meiri hlutans um bráðabirgðaákvæði leggur 1. minni hluti ekki til aðrar breytingar að svo stöddu, en styður tillögu meiri hlutans og áréttar mikilvægi þess að breytingin verði metin í kjölfarið, þá sérstaklega með tilliti til þess möguleika að gera hana varanlega. Er átt við þá breytingu sérstaklega að aldurinn sé hækkaður úr 35 árum í 40 ár, þ.e. þeirra nemenda sem geta tekjutengt afborganir.

Þá þarf að fjalla aðeins um 26. gr. frumvarpsins en þar kemur fram að um fyrningarfrest kröfu vegna námslána fari eftir ákvæðum laga um fyrningu kröfuréttinda og að ákvæði laga um gjaldþrotaskipti um lengd fyrningarfrests og sérreglur þeirra um slit fyrningar gildi ekki um námslán. Umsagnaraðilar hafa bent á að ákvæðið brjóti í bága við meginreglu skuldaskilaréttar um jafnræði kröfuhafa auk þess að fela í sér mismunun á milli skuldara eftir tegund skulda, svo sem vegna námslána eða húsnæðisskulda. Vafi sé um hvort frumvarpið samræmist jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar.

Sambærilegt ákvæði er ekki að finna í núgildandi lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna og er því um að ræða nýmæli. Í athugasemdum við 26. gr. segir að tilgangur ákvæðisins sé að kröfur samkvæmt námslánaskuldabréfum verði undanþegnar ákvæðum 2. og 3. mgr. 165. gr. laga um gjaldþrotaskipti. Umræddar 2. og 3. mgr. 165. gr. komu nýjar inn í lög um gjaldþrotaskipti árið 2010 í kjölfar efnahagshrunsins en samkvæmt þeim fellur krafa niður tveimur árum eftir gjaldþrotaskipti nema kröfuhafi höfði sérstakt dómsmál og fái fyrningarslit viðurkennd.

Til þess að fá fyrningarslit viðurkennd í slíku dómsmáli er nauðsynlegt að sóknaraðili í málinu sýni fram á að hann hafi sérstaka hagsmuni af því að slíta aftur fyrningu, svo og að líkur megi telja á að fullnusta geti fengist á kröfu hans á nýjum fyrningartíma. Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur höfðað fjölda slíkra dómsmála til að fá fyrningarslit viðurkennd eftir gjaldþrot lánþega og hefur nokkrum þeirra verið áfrýjað til Hæstaréttar. Hæstiréttur hefur í flestum tilfellum komist að þeirri niðurstöðu að viðurkenna ekki fyrningarslit, enda hafi lánasjóðurinn ekki sýnt fram á að aðstæður hans væru sérstakar í samanburði við aðra lánveitendur. Þá væri Lánasjóður íslenskra námsmanna ríkisstofnun sem væri rekin með framlögum ríkisins, þess sama og hefði sett 3. mgr. 165. gr. laganna án þess að undanþiggja lánasjóðinn eða aðra tiltekna lánardrottna frá því að þurfa að hlíta reglum ákvæðisins. Að þessu virtu bæri lánþega ekki að greiða kröfuna í kjölfar gjaldþrotsins.

Svo virðist sem að umrædd 26. gr. frumvarpsins hafi verið sett inn í frumvarpið til að styrkja stöðu Menntasjóðs í slíkum málsóknum og undanþiggja sjóðinn frá 2. og 3. mgr. 165. gr. laga um gjaldþrotaskipti. 1. minni hluti telur ótækt að svipta lánþega þeim réttindum sem þeim voru veitt með lögum um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti, nr. 142/2010, og telur að lánþegar hjá Menntasjóði námsmanna ættu ekki að búa við lakari réttarvernd en aðrir ef til þess kemur að þeir verði gjaldþrota. Leggur 1. minni hluti til að ákvæði 26. gr. frumvarpsins falli brott.

Í frumvarpinu er stjórn Menntasjóðs falið viðamikið hlutverk þegar kemur að stjórn sjóðsins og nánari útfærslu reglna er gilda um hina ýmsu þætti starfseminnar, m.a. hvað varðar framfærsluviðmið, vaxtaálag, endurgreiðslutíma og reglur um námsframvindu. Umsagnaraðilar hafa bent á að það sé óeðlilegt að framkvæmd og virkni sjóðsins sem félagslegs jöfnunartækis geti í veigamiklum atriðum ráðist af þeim áherslum sem stjórn mótar hverju sinni án atbeina löggjafans.

Í því ljósi áréttar 1. minni hluti þá afstöðu sína að fullt tilefni sé til ítarlegri umfjöllunar um efni frumvarpsins áður en það verður að lögum, en sömuleiðis mikilvægi þess að fram fari mat á áhrifum lagasetningarinnar þegar þau áhrif eru komin í ljós.

Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þingskjali.

Sá sem hér stendur vonar að skilmerkilega hafi verið gerð grein fyrir öllum þeim breytingartillögum sem er að finna í því þingskjali en leggur þó til að áheyrendur lesi það sjálfstætt, enda allt þar sem á að skipta máli.

Það er ýmislegt sem stendur eftir í kjölfar þessarar umfjöllunar. Það er t.d. þetta hámark ECTS-eininga upp á 420 plús doktorsnám. Umsagnaraðilar báðu um endurskoðun á þessu. Ég las fyrr í dag að 2. minni hluti hefði brugðist við þessu. Hvet ég þingmenn til að gefa því gaum. Sá sem hér stendur mun vissulega gera það.

Þá var bent á að í 13. gr. vantaði lagastoð fyrir innflytjendur sem þurfa viðbótarnám til að fá viðurkenningu á fyrra námi en ná ekki að uppfylla kröfur um lágmarksnámsframvindu. Landssamband íslenskra stúdenta benti á þetta og sömuleiðis komu inn athugasemdir hvað varðar námslán til framhaldsnáms, eitthvað sem sá sem hér stendur hefur ekki náð að kynna sér nógu vel fyrir þessa tilteknu umfjöllun en vonar að fá næði í áframhaldi umfjöllun þingsins, þá á ég vitaskuld við hv. allsherjar- og menntamálanefnd.

Að þessu virtu, virðulegi forseti, vil ég ítreka þá ósk mína að betur verði farið yfir málið milli 2. og 3. umr. Sér í lagi kalla ég eftir því, ef meiri hlutinn hefur áhuga á og telur skynsamlegt, að íhuga þær breytingartillögur sem liggja fyrir, ekki bara af hendi þess sem hér stendur, 1. minni hluta, heldur einnig 2. minni hluta. Þó að eitthvað sé sammerkt með þessum tveimur minnihlutaálitum og breytingartillögum eru þær ekki alveg samhljóða. Ég tók eftir að 1. minni hluti bregst við hlutum sem 2. minni hluti gerir ekki og öfugt. Við snöggan yfirlestur áðan datt mér í hug að sameina þessi tvö eða í það minnsta að fjalla betur um þau. Eins og kom fram áðan hjá hv. framsögumanni nefndarálits meiri hlutans stendur til að endurskoða þetta kerfi að þremur árum liðnum og það er jákvætt.

Ég verð að halda hér stutta tölu, virðulegi forseti, um það hvernig ég tel að við eigum að líta á menntun í grundvallaratriðum. Sjálfsagt hefur þessi söngur verið sunginn hér nokkrum sinnum.

Menntun og stuðningur við menntun er ekki eitthvað sem við eigum að líta á sem ölmusu. Í fyrsta lagi er lánakerfið, sem er eitthvað sem við gætum alveg deilt um hvort eigi yfir höfuð að vera. Fullt af fólki finnst að þetta eigi ekki að vera lánakerfi heldur einfaldlega styrkjakerfi. En við erum með þetta lánakerfi og þess þá heldur, í kjölfar þessara breytinga, verðum við að átta okkur á því að þegar við fellum niður höfuðstól um 30% eða 40%, eins og hér er lagt til, þá erum við að fjárfesta til framtíðar fyrir þjóðina, fyrir alla Íslendinga. Þetta eru ekki peningar sem renna bara í vasa einhvers nemanda sem fær „ölmusuna“ frá yfirvöldum. Þetta er fjárfesting okkar til framtíðarinnar. Ég hélt stutta ræðu um það fyrir ekki mörgum dögum að undirstaða nútímasamfélagsins sé tvenns konar, annars vegar vísindi og hins vegar alþjóðasamstarf. Menntunin er forsenda hvors tveggja. Víða í heiminum er menntun álitin eins og húsnæði, þar sem viðkomandi fær lán til að kaupa húsnæði fyrir sjálfan sig. Við getum ekki leyft okkur að líta á menntun á sama hátt, virðulegi forseti, þó að sumir stjórnmálamenn séu þeirrar afstöðu að það sé helsti draumur allra að eignast sitt eigið húsnæði, sem er ekki rétt, meðan ég man, það er bara allt önnur Ella.

Menntun eigum við að styðja eins mikið og við mögulega komumst upp með. Við eigum ekki að reyna að hafa hemil á því með því að styðja það rétt svo nógu mikið sem við þurfum eða teljum okkur mögulega rétt svo geta, heldur eigum við að sækja fram. Þess vegna leggur 1. minni hluti til 40% niðurfellingu, það er gert í Noregi. Og að mati 1. minni hluta ættum við ekki að vera okkar ágætu frændum og frænkum síðri, eða hverjum öðrum í Noregi, heldur ættum við þvert á móti að reyna að vera best, reyna að vera best í einhverju. Það þykir mér reyndar gilda um fleiri málefni. Mér finnst það stundum vanta metnaðinn á Alþingi, að við ætlum að vera best í einhverju. Gætum við ekki bara verið best í menntun? Er það ekki svolítið töff? Mér þætti það mjög töff. Nú verðum við aldrei algerlega sammála um það nákvæmlega hvernig við komumst þangað eða í hverju það felst. Ég hygg að við værum langt komin ef við værum þó sammála um það.

Þrátt fyrir ágætan metnað að mörgu leyti og ágæti þessa frumvarps og meirihlutaálitsins þykir mér sá metnaður ekki endurspeglast í því sem ég hefði viljað sjá, og ég veit að fleiri hefðu viljað sjá það í þessum mikilvæga málaflokki.

Nú skal ég gera áheyrendum þann greiða, virðulegi forseti, að ljúka máli mínu loksins, en ítreka stuðning minn við málið og fagna því að það verði endurskoðað. Ég ítreka enn og aftur ósk mín að það verði skoðað betur áður en það verður samþykkt við lok 3. umr.