Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Það er alveg rétt að sú leið sem við leggjum til og hv. 1. minni hluti líka, kostar meiri útgjöld, ég vil reyndar frekar nota orðið fjárfestingar vegna þess að þetta eru vitaskuld fjárfestingar sem skila sér margfalt aftur í lífsgæðum, hvernig svo sem þau eru mæld.
Varðandi ábyrgðirnar er alveg rétt að þeir sem sitja í óskiptu búi erfa skuldir og eignir, eins og sagt er. En mér finnst nú svolítið vafamál hvernig skilgreina eigi ábyrgðir af þessu tagi. Eru þetta skuldir eða eignir? Þetta er kannski ábyrgð sem maki viðkomandi hefur gengist undir, jafnvel áður en gengið var í hjónaband, áður en sá sem eftir er kynntist maka sínum sem nú er látinn, og allt í einu lifna þessar gömlu ábyrgðir og verða að mikilli meinsemd jafnvel í lífi viðkomandi. Eru þetta skuldir viðkomandi? Mér finnst það vera mikið álitamál, og mér finnst það ekki álitamál heldur réttlætismál að ábyrgðir af því tagi falli niður.