150. löggjafarþing — 109. fundur,  28. maí 2020.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:31]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra þar sem óskað er eftir framlengdum fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 869, um aftökur án dóms og laga, frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur, á þskj. 584, um kafbátaleit, frá Andrési Inga Jónssyni, á þskj. 1052, um áhrif erlendra ríkja á niðurstöður kosninga, frá Helga Hrafni Gunnarssyni, á þskj. 124, um athugasemdir ráðuneytis við lögfræðilegar álitsgerðir, og á þskj. 113, um skuldbindingu íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, báðar eru frá Ólafi Ísleifssyni.