undirbúningur við opnun landamæra.
Hæstv. forseti. Já, ég tók eftir því að spurningunni var ekki svarað. Það er svo sem ekki í fyrsta sinn. En ég spurði hæstv. ráðherra einfaldlega: Telur hann að það hafi verið heppilegt að ekki hafi verið haft samráð við þá aðila sem hafa ekki síst lagt hönd á plóginn með hinu opinbera heilbrigðiskerfi til að koma okkur út úr baráttunni? Telur hann það heppilegt að heilbrigðisráðherra og heilbrigðisforystufólk í ríkisstjórninni hafi ekki talað við alla þá aðila sem geta hjálpað okkur við að opna landið? Þessi yfirlýsing um opnun veitti von um að við værum að stíga inn í nýja tíma. Það er þá stjórnmálanna að taka við, af því að við höfum stólað á vísindafólkið okkar, þetta frábæra vísindafólk, það hefur leiðbeint stjórnmálunum. Nú er ákvörðunarvaldið komið yfir til stjórnmálanna, stjórnmálamanna og ríkisstjórnar sem hafa öll gögn í hendi sér. Það er ríkisstjórnar að bera ábyrgð á skipulaginu núna og það þýðir ekki að skýla sér á bak við vísindafólkið okkar í þessu.
Því spyr ég: Telur ráðherra heppilegt að ekki hafi verið talað við til að mynda Íslenska erfðagreiningu? Ég sé það einnig að þetta kom veirufræðideildinni (Forseti hringir.) á Landspítalanum líka á óvart. Talað var við hana eftir blaðamannafundinn. (Forseti hringir.) Mér finnst þessi atburðarás ekki trúverðug, hún er ekki traustsins verð og mér finnst það miður. Ég vil bæta við einni aukaspurningu: (Forseti hringir.) Hvernig sér ráðherra kostnaðinn framkvæmdan? Við heyrðum allt aðrar tölur í gær en þær sem hafa verið kynntar opinberlega.