undirbúningur við opnun landamæra.
Virðulegi forseti. Hér er spurt að því hvort heppilegt sé að ekki sé leitað til alls okkar færasta fólks. Ég hef einfaldlega svarað því til að við höfum sýnt það í verki að það er einmitt það sem við gerum. Á því byggir okkar góði árangur. Nú erum við með áætlun um opnun landamæranna um miðjan júnímánuð og ég ætla að fullyrða það hér að auðvitað verður staðið faglega að því eins og við höfum gert hingað til.
Ég vil meina að fullyrðingar um að eitthvað annað standi annað til séu á mjög veikum grunni reistar. Mér heyrist þær eingöngu reistar á einhliða yfirlýsingum Kára Stefánssonar í gærkvöldi, sem útilokaði þó ekki að eiga aðkomu að málinu.