opnun landamæra 15. júní.
Virðulegi forseti. Ég vænti þess að hv. þingmaður sjái ekki eftir því að hafa stutt ríkisstjórnina í áformum hennar um að bregðast við faraldrinum enda hefur heppnast vel að útrýma veirunni því sem næst í þessari lotu þó að við þurfum áfram að vera á varðbergi. Við sjáum það sömuleiðis á efnahagsumsvifum innan lands; kortavelta er mjög að aukast, umferð er að vaxa að nýju, skólarnir komnir í sitt fyrra horf og nú eru sundlaugar og líkamsræktarstöðvar að opna. Þannig að við höfum verið hér með áætlun sem gengið hefur vel upp og ég hlýt að ganga út frá því að stjórnarandstaðan, sem hefur verið með okkur í því að tryggja framgang þeirra mála sem hafa þurft að koma fyrir Alþingi, sjái ekki eftir því.
Varðandi það sem sérstaklega var spurt um og snýr að opnun landamæra núna um miðjan júní þá höfum við verið að vinna með okkar færasta fólki, sérfræðingum á þessu sviði, þvert á mörg ráðuneyti, til að leggja mat á hvað raunhæft er að gera. Að baki þeirri ákvörðun liggur töluvert mikil vinna og samantekt á þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Ein af áskorununum er augljóslega sú að við vitum ekki nákvæmlega hversu margir koma og það er heljarmikið verkefni á landamærum að fara í skimun á mörg hundruð, jafnvel þúsundum manna á dag. Við vitum að þegar mest lét þá komu hér mörg þúsund manns á dag, kannski rúmlega 4.000. Um það snýst verkefnið og að því er unnið. Þetta er fjölþætt verkefni sem snýr að öllum sem að því koma, heilbrigðisyfirvöldum en líka landamæragæslunni og hreinlega flugvellinum sjálfum, að við séum með aðbúnað, aðstöðu og (Forseti hringir.) skipulag sem getur gert ráð fyrir allri þessari vinnu. Ég hef trú á því að eins og hingað til hefur gengið vel muni okkur farnast vel í að (Forseti hringir.) leysa það.