150. löggjafarþing — 109. fundur,  28. maí 2020.

um fundarstjórn.

[11:11]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég vil bara hafa það á hreinu áður en við höldum lengra inn í þingdaginn að auðvitað var ég ekki að halda því fram að hæstv. fjármálaráðherra mætti ekki á fundi stjórnarskrárnefndar. Hann hefur reyndar mætt vel á alla þá fundi sem við höfum verið boðaðir á saman. Það sem ég átti við var að ég vonaðist til að hann kæmi á næsta fund stjórnarskrárnefndar og féllist á tímabindingu inn í stjórnarskrárákvæði um auðlindir. Það held ég reyndar að útskrift á ræðum mínum muni sýna. Maður verður auðvitað að ætlast til þess að ráðherrar sem koma hingað í andsvar reyni að lesa í samhengi og svara fyrirspurnum efnislega frekar en að klippa setningar úr samhengi með einhverjum orðhengilshætti. En ef þetta hefur komið skakkt út úr mér þá bið ég auðvitað hæstv. fjármálaráðherra afsökunar á því.