150. löggjafarþing — 109. fundur,  28. maí 2020.

fjáraukalög 2020.

841. mál
[11:27]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin en ég verð því miður að vera ósammála vegna þess að við settum 20.000 kr. eingreiðslu fyrir öryrkja inn í fjáraukann. Það var mjög lítið en það var samt gott og þörf á því og miklu meira.

En við höfum ekki sett krónu inn fyrir eldri borgara. Þess vegna er ég að velta því fyrir mér, ég veit um eldri borgara sem standa í þessu. Við erum að tala um fólkið sem byggði upp þetta land. Við erum að tala um þá sem voru á lægstu laununum, sem hafa lagt mest á sig vegna þess að þeir fá minnst út úr kerfinu. Og hverjir fá enn þá minna? Konur sem voru heima. Þetta er allt hirt og nú á að hækka matvöru og annað út af gengi. Fólk hefur þurft að vera lokað heima og panta og láta senda sér. Það er dýrt. Þeir sem verst hafa það af eldri borgurum eiga líka rétt á því að fá aðstoð.