fjáraukalög 2020.
Herra forseti. Ég þakka ráðherra framsöguna um þetta þriðja fjáraukalagafrumvarp. Ég vil koma aðeins inn á hlutabæturnar og greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli. Lagt er til að setja 34 milljarða kr. í þetta og verið að sækja hér fjárheimild fyrir því. Við höfum fengið fréttir af því að þessi leið hefur verið misnotuð. Í fyrsta lagi vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort búið sé að tryggja með þessu að það verði ekki svo áfram. Er búið að koma í veg fyrir að þetta úrræði verði misnotað?
Auk þess vildi ég spyrja ráðherra út í það að þarna eru stöndug fyrirtæki, rúmlega 50 fyrirtæki sem endurgreiddu bætur eftir fjölmiðlaumfjöllun og þá koma væntanlega peningar inn í ríkissjóð, einhver hundruð milljóna, held ég. (Forseti hringir.) Ekki er gert ráð fyrir því að lækka þá fjárheimild. Ég spurðist sérstaklega fyrir um það í fjárlaganefnd og það er ekkert búið að taka það saman hvað upphæðin er há eða neitt svoleiðis. (Forseti hringir.) Er ekki eðlilegt að gera það?