fjáraukalög 2020.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað sorglegt að þurfa að horfa upp á þá stöðu sem hefur skapast þar sem við erum að taka ákvörðun um að greiða fólki, sem er ekki að vinna, bætur, enda sé það með virkan ráðningarsamning við vinnuveitanda sinn en þar eru engin verkefni. Við erum í raun að greiða laun án þess að nein vinna sé unnin. Þetta er sorgleg staðreynd. Hún kemur ekki til af góðu. Ég tek að sjálfsögðu undir með hv. þingmanni þegar hann spyr: Væri ekki nær að setja eins mikið og við getum í að skapa frekar ný störf og nýta þessa fjármuni til þess að eitthvað verði til? Ég tek undir það. Við erum reyndar að setja mjög háar fjárhæðir í það. Ég myndi segja að við værum hreinlega í atvinnubótavinnu líka með þessum umfangsmikla stuðningi við sveitarfélögin t.d., sem kalla eftir því að ráða til sín nokkur þúsund manns (Forseti hringir.) í alls konar verkefni sem áður voru ekki fyrirhuguð og fleira kemur til. Við sjáum fyrir okkur mögulega að leyfa fyrirtækjum að ráða til sín fólk af atvinnuleysisskrá (Forseti hringir.) og halda bótum í einhvern tíma síðar þegar að því kemur, þegar hlutastarfaleiðinni er lokið.