fjáraukalög 2020.
Herra forseti. Ef við skoðum stóru tölurnar í aðgerðum ríkisstjórnarinnar, hlutabæturnar 34 milljarðar, uppsagnargreiðslurnar 27 milljarðar. Ef við bætum atvinnuleysisbótunum við þá stefna þær í 50 milljarða á þessu ári. Það er uppistaðan í aðgerðum ríkisstjórnarinnar, þetta eru stóru tölurnar. Þetta er það sem ég hef verið að gagnrýna. Ég er hrifinn af hlutabótaleiðinni, ég er bara segja að við getum gert miklu meira og annað eins og með nýsköpunina. Ég er t.d. að tala um málefni listafólks og kvikmyndaiðnaðarins. Þetta eru svo miklir smáaurar, þetta er skiptimynt í stóra samhenginu. Þess vegna skil ég ekki af hverju við tökum ekki þau skref.
Tækniþróunarsjóður fær 2 milljarða á meðan halli ríkissjóðs stefnir í 300 milljarða á þessu ári, hann stefnir í 200 milljarða á næsta ári. Af hverju erum við þá nísk þegar kemur að nýsköpun? Af hverju þarf ríkisstjórnin að fella tillögur um aukin framlög til Framkvæmdasjóðs ferðamanna, aukin framlög til sóknaráætlana landshluta, aukin framlög til ungra frumkvöðla?
Þið fellduð tillögur um að auka hér aðeins álagsgreiðslur til framlínufólks í heimsfaraldrinum. Þið hafið fellt hér stórar og smáar tölur. Ég er alls ekki að segja að þið eigið að samþykkja allar tillögur okkar, alls ekki. En væri ekki ráð að samþykkja eitthvað af þeim? Ég held að þið hafið samþykkt bókstaflega eina tillögu af öllum. Mér finnst það vera óþarfaskotgrafahernaður í pólitík því að ég veit alveg að margar af þessum tillögum er eitthvað sem þið getið vel sætt ykkur við. Þetta ætti ekkert að snúast um stjórn og stjórnarandstöðu. Þetta er alls ekki spurning um hægri eða vinstri, þetta er bara spurning um að reyna að gera hið rétta í erfiðri stöðu þjóðarbúsins. Það er eina nálgun mín. Þess vegna er ég svolítið hvass gagnvart ráðherranum. Ég er í alvörunni að reyna að hvetja hann til góðra verkefna. (Forseti hringir.) Ég veit hann getur gert meira og ég veit að við myndum öll hagnast á því ef hann myndi gera aðeins meira, (Forseti hringir.) ekki síst þegar kemur að nýsköpun.