150. löggjafarþing — 109. fundur,  28. maí 2020.

fjáraukalög 2020.

841. mál
[12:06]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni varðandi mikilvægi nýsköpunar enda höfum við aldrei fyrr gert jafnmikið á þeim vettvangi og það er almenn ánægja, heyrir maður, frá þeim sem starfa á því sviði og eru að skapa nýja hluti og eru að stofna til sprotafyrirtækja sem verða okkur afar mikilvæg til framtíðar. Við höfum aldrei gert meira fyrr. Við vorum bara nýlega — af því að hv. þingmaður kom inn á fjárframlög til Tækniþróunarsjóðs, fjölmörg góð verkefni sem þar fara í gegn — að hækka endurgreiðsluhlutfall kostnaðar til rannsókna og þróunar upp í 35%. Það mun vigta mjög þungt inn í framtíðina. Við erum núna að verja störfin.

Ég vil benda hv. þingmanni á maíhefti Peningamála Seðlabankans, sem er nýútkomið, þar sem farið er yfir þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar og umfangið og samanburð við Norðurlöndin. Umfangið er 11,9% af vergri landsframleiðslu síðasta árs. Það er meira en Svíþjóð, Danmörk og Finnland eru að gera. Það slagar í það sem Noregur er að gera með sinn olíusjóð. Aðgerðirnar eru sömuleiðis mjög sambærilegar þegar við teljum þær upp og þær eru fjölmargar, í 20 liðum í því hefti. Þannig að ég held að við og hæstv. ríkisstjórn höfum mætt þessu verkefni okkar mjög myndarlega og bara mjög sambærilega. Við verðum síðan að gæta að því að það kemur næsta ár eftir þetta þegar við hugum að fjárlögum og þeim lagaumbúnaði sem lög um opinber fjármál setja okkur, að gæta varfærni, sjálfbærni og að það komi betri tíð.