150. löggjafarþing — 109. fundur,  28. maí 2020.

fjáraukalög 2020.

841. mál
[12:13]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Já, við erum bara ósammála. Mér finnst umfangið ekki nægjanlegt. Það er uppistaðan í minni gagnrýni og ég held flestra í stjórnarandstöðu. Hér er hægt að gera meira. Ég er alls ekki að segja að við gerum allt fyrir alla. En hér er einfaldlega hægt að gera meira og ég reyndi að afmarka það við nýsköpun og við list og menningu og annað slíkt sem væri svo einfalt að gera og myndi ekki kosta mikið en myndi skila miklu. Ég veit að hér stefnir í methalla. Ég veit það. Mér finnst fókusinn fyrst og fremst vera á atvinnuleysisbætur og uppsagnaleiðina. Þar eru stórar tölur eins og ég gat um áðan. Þess vegna spyr ég: Hver er framtíðarsýnin með uppbygginguna, hvar glittir í Ísland framtíðarinnar? Hvernig ætlum við að byggja hér upp? Ég veit að ríkisstjórnin er búin að vera í ákveðinni krísustjórnun, ég hef skilning á því. En nú eru liðnir tveir mánuðir. Ég sé enn ekki glitta í þá framtíðarsýn.

Hæstv. fjármálaráðherra er í einhverju kvabbi við mig um hvort opinber störf skili verðmætum eða ekki eða hvort við eigum fjölga þeim. Hér er bara hugmyndafræðilegur munur milli þessara flokka. Við þurfum ekki að þreyta þjóðina á því. Mér finnst það bara svo augljóst að þetta er úrræði sem við höfum í okkar hendi, að fjölga opinberum störfum í því augnamiði að bæta þjónustuna. Þetta lá fyrir meira að segja fyrir þennan faraldur. Við vitum alveg að hér vantar hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Í dag eru lögreglumenn færri en fyrir tíu árum. Af hverju getum við ekki nýtt tækifærið núna og bætt í þessi lykilstörf? Það var það eina sem ég var að kalla eftir.

Auðvitað þurfum við að fjármagna þetta. Þess vegna eigum við eftir að taka þessa umræðu: Munu auðlindagjöld verða hækkuð eða lækkuð? Hvaða skatta ætlar hæstv. ráðherra að hækka eða mun hann ekki hækka neitt? Ætlar hann einfaldlega að skera niður? Í þessu debatti um einkastörfin og opinberu störfin má ekki gleyma því (Forseti hringir.) að 70% starfa í landinu eru störf í einkageiranum þannig að ég er ekkert að tala um að hið opinbera muni gnæfa yfir allt, alls ekki. (Forseti hringir.) Og það er ekki hugmynd Samfylkingarinnar (Forseti hringir.) að kalla eftir opinberum störfum, þetta er tillaga sem á alls staðar hljómgrunn nema hjá Sjálfstæðisflokki Íslands.