150. löggjafarþing — 109. fundur,  28. maí 2020.

fjáraukalög 2020.

841. mál
[12:16]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Aðeins fyrst um veiðileyfagjöldin af því að því er haldið fram að þau hafi verið lækkuð, sérstaklega á þessu kjörtímabili, sem er rangt. Það sem er að gerast er einfaldlega það að afkoma útgerðarinnar hefur versnað. Það skilar sér í lægri gjöldum. Hið rétta er að á undanförnum árum hafa verið slegin met í töku veiðigjalda af íslenskum sjávarútvegi.

Varðandi nýsköpunina er það komið fram að við höfum verið í miklu átaki við að hvetja menn bæði í rannsókna- og þróunarstarfinu. Við höfum verið að lyfta þökum, hækka viðmið. Það kemur í kjölfarið á því að við gjörbyltum umhverfi rannsókna og nýsköpunar á Íslandi, rannsókna- og þróunarstarfs. Og hvað varðar nýsköpunina sérstaklega þá höfum við tekið hér í gegnum þetta vorþing aðgerðir sem hafa fengið mikið lof hjá geiranum og munu nýtast mjög vel, bæði fyrirtækjum sem vilja kalla til sín efnilegt ungt fólk úr háskólakerfinu en líka fyrirtækjum sem vilja auka umsvif sín á þessu sviði. Við höfum verið að setja inn í samkeppnissjóðina þannig að við höfum verið með fjölbreyttar aðgerðir í þágu nýsköpunar, þróunar og rannsókna á Íslandi á þessu vorþingi.

Að lokum varðandi umsvifin þá er það út af fyrir sig alltaf álitamál hversu langt á að ganga. Ég tel að við höfum staðið við það sem við sögðum í upphafi að við vildum taka myndarlega á þessu og gera meira heldur en minna. Við höfum ekki farið í niðurskurð eins og stundum hefur verið gert. Við höfum sætt okkur við að fara í halla vegna þess að við höfum búið í haginn til þess að geta gert það. Skattbreytingar hafa engar verið nema við höfum verið með ýmsar aðgerðir til að fresta innheimtu skatta. Það er því ekki rétt hjá hv. þingmanni (Forseti hringir.) að okkar aðgerðir hafi eingöngu einkennst af því að grípa þá sem eru orðnir atvinnulausir.