150. löggjafarþing — 109. fundur,  28. maí 2020.

fjáraukalög 2020.

841. mál
[12:40]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Já, við í hv. fjárlaganefnd förum bara í þessa vinnu. Við köllum eftir mati á því hvernig þetta stendur allt saman. Varðandi óvissuna alla, ef ég er spurður persónulega út í þessa stöðu og þessi tilteknu verkefni, þá held ég að það eigi ekkert að standa í okkur að taka á móti þessu fólki. Við erum að taka á móti fólki sem er að koma hingað vegna vinnu. Það fer sjálfkrafa eftir ákveðnum reglum í sóttkví án þess að vera skimað á landamærum. Ég held að það sama eigi að geta gilt um þessi verkefni. En það er mín persónulega afstaða, ég tek það fram. Þetta þarf að skoðast í allt öðru samhengi þegar slíkar ákvarðanir eru teknar og í samráði við sóttvarnayfirvöld o.s.frv.

Hv. þingmaður kom inn á hlutabótaleiðina. Ég er nú í þeim hópi sem telur að hlutabótaleiðin sé afar vel heppnuð. Mér hugnast ágætlega hugmyndafræðin á bak við tillögu sem hv. þingmaður fór yfir um hvata. Við erum í þessu verkefni að verja störf og allir jákvæðir hvatar af þessu tagi eru góðir og ber að skoða. Ég vil bara kalla eftir afstöðu hv. þingmanns og Viðreisnar varðandi skilyrðin sem hafa verið til umræðu af því að við erum að verja sambandið við launamanninn en leggjum svo öll skilyrðin á fyrirtækin, sem bitnar á launamanninum. Þetta er svolítið sérstök umræða og öllu einhvern veginn blandað saman og snúið á hvolf í þessu.

Varðandi Kríu þá tek ég undir að það verður okkar verkefni. Flestir vísisjóðir eru nánast fullfjárfestir og það verður örugglega ekki erfitt að koma þessum fjármunum í mörg góð verkefni. Það er tvennt sem ég vil draga fram. Ég held að þessi sjóður eigi að byggjast upp á nokkrum árum í að verða 7–8 milljarðar, ef ég man rétt, (Forseti hringir.) og svo er auðvitað alltaf mjög mikilvægt að við séum með fjölbreytt umhverfi. Þetta er ein leið sem er verið að setja fram en við þurfum að skoða (Forseti hringir.) í samhengi hversu stór þessi sjóður á og má (Forseti hringir.) verða.