fjáraukalög 2020.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið sem skiptist í meginatriðum í tvennt. Ég byrja á því fyrra varðandi hlutabótaleiðina og þau skilyrði sem verið er að setja. Þarna er vandratað meðalhófið og auðvitað getur ríkissjóður ekki opnað sínar hirslur og menn gengið þar um eins og þeim sýnist. Það liggur fyrir. En um leið þarf að gæta þess þegar skilyrði eru sett að þau séu sem skýrust og séu afdráttarlaus um þau atriði sem menn telja mikilvægust. Við í Viðreisn höfum lagt mikla áherslu á það og sem betur fer eru margir sammála því að mikilvægast sé að allt sé uppi á borðum, menn viti nákvæmlega hverjir fá og fyrir hvað og hvað þeir fá. Það er mjög mikilvægt. Við höfum ekki verið hrifin af mörgum þeim skilyrðum sem hafa verið í umræðunni og hafa jafnvel verið sett um það hverjir geta fengið svona. Við teljum bara að menn gangi of langt og að þeir gleymi heildarmarkmiðinu sem er að þessi úrræði séu skjótvirk og aðgengileg. Auðvitað er með þessi kerfi eins og öll önnur að einhverjir munu misnota þau. Það þarf þá að hafa skilvirkt eftirlitskerfi sem verður bara að vera eftir á, til að góma þá, því ekki viljum við að kerfi, hvorki þetta né nokkur önnur, séu misnotuð.
Örstutt um kríuna. Ég tek undir með hv. þingmanni, við skulum fara mjög vel yfir þetta í hv. fjárlaganefnd og ég trúi því og treysti að við finnum einhverja lausn í því.