stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Frú forseti. Þannig að það sé alveg skýrt, við höfum átt þessa umræðu áður: Ef hv. þingmaður á við að þeir sem nýti sér skattaskjól séu að koma sér undan skattgreiðslum sem þeim ber lögum samkvæmt að greiða hér á Íslandi þá er ég með henni í liði, ef þeir uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru hér til þess að njóta þess stuðnings sem skattgreiðendur á Íslandi ætla að veita fyrirtækjum sem eru í stórkostlegri neyð. Við erum annars vegar að gefa þeim tækifæri til að komast í gegnum þetta í þeirri von að einhver fyrirtæki lifi af 75% tekjufall og a.m.k. ætlum við að verja réttindi starfsmannanna með því að tryggja þeim þó laun á uppsagnarfresti í staðinn fyrir að þeir þurfi að bíða mánuðum saman eftir uppgjöri úr Ábyrgðasjóði launa.
Ég er ekki á móti því að fyrirtæki taki þátt í baráttunni þegar kemur að loftslagsmálum en við erum hins vegar að fjalla hér um björgunaraðgerð fyrir fyrirtæki sem eru að róa lífróður. Eru menn í alvöru að (Forseti hringir.) velta því fyrir sér að leggja á auknar byrðar eða gera þetta erfiðara fyrir fyrirtæki þegar þau þurfa á öllu sínu að halda (Forseti hringir.) að einbeita sér að því að bjarga því sem bjargað verður?
(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörkin.)