150. löggjafarþing — 109. fundur,  28. maí 2020.

stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.

811. mál
[15:13]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er áhugavert að heyra að við hv. þingmaður erum í grunninn sammála um hvatana sem þessi tvö frumvörp mynda, þótt við séum kannski ekki sammála um nákvæmlega hvernig samspilið verður til þess. Ég, líkt og þingmaðurinn, hef áhyggjur af því að við séum að smíða kerfi sem hvetur til uppsagna, hvort sem það er með þessu frumvarpi eða hlutabótafrumvarpinu. Verkalýðshreyfingunni finnst nú ýmislegt um það að krefja starfsfólk um vinnuframlag á uppsagnarfresti. Einn formaður VR sagði t.d. að það væri siðlaust í þessu tilviki. Spurningin er hvort það hafi verið skoðað að búa til ákvæði, ekki ákvæði sem myndi leysa allt fólk undan því að vinna á uppsagnarfresti heldur gefa launafólki aukið tækifæri til að ráða því sjálft þannig að það séu ekki atvinnurekendurnir sem fá þennan styrk sem hafi öll vopn í höndum sér.

Svo láðist þingmanninum að svara hinni spurningunni (Forseti hringir.) sem var um hvernig samhengi á milli málanna tveggja hafi verið tryggt, (Forseti hringir.) ekki á einhverjum persónulegum grunni heldur formlega á milli nefndanna tveggja (Forseti hringir.) líkt og ég réð af máli hæstv. ráðherra að hann ætlaðist til að gerðist.