150. löggjafarþing — 109. fundur,  28. maí 2020.

stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.

811. mál
[15:24]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti 1. minni hluta í efnahags- og viðskiptanefnd, 1. minni hluti er sú sem hér stendur, fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni. Með frumvarpinu er lagt til að veittur verði fjárstuðningur til greiðslu hluta launakostnaðar atvinnurekenda á uppsagnarfresti launamanna. Markmið frumvarpsins samkvæmt 2. gr. er að tryggja réttindi launafólks og tryggja þeim atvinnurekendum stuðning sem horfa fram á umfangsmikið tekjutap vegna faraldurs kórónuveiru og aðgerða sem honum tengjast.

Fyrsti minni hluti telur mikilvægt að ríkið styðji fyrirtæki í erfiðri stöðu en dregur í efa að frumvarpið tryggi réttindi launafólks og telur að það geti í sumum tilfellum unnið gegn launafólki. Mikilvægt er að ráðningarsamband haldist á milli atvinnurekenda og starfsmanna á meðan erfiðleikarnir ganga yfir. Því er hlutabótaleiðin svokallaða ákjósanlegur stuðningur þar sem ráðningarsamband er tryggt þótt greiðslur til launamanna verði sambland af launum og atvinnuleysisbótum.

Með frumvarpinu sem hér um ræðir fá atvinnurekendur beinlínis sérstakan stuðning til að segja upp fólki. Töluverðar líkur eru á því að hvatinn verði í þá átt að segja fólki upp frekar en að framlengja ráðningarsambandið með hlutabótaleiðinni. Einkum má gera ráð fyrir því vegna þess að engin krafa er um endurgreiðslu á stuðningnum sem getur orðið rúmar 2 millj. kr. alls með hverjum starfsmanni. Ef fyrirtæki segir upp 10 starfsmönnum getur stuðningurinn orðið rúm 21 millj. kr. og ef 50 starfsmönnum er sagt upp rúmar 107 millj. kr.

Allar líkur eru á því að einhver fyrirtæki sem fá stuðninginn verði þrátt fyrir hann gjaldþrota. Vonandi verður stuðningurinn þó til þess að fleiri fyrirtæki ná sér á strik en ella enda er það markmiðið. Í greinargerð með frumvarpinu er gert ráð fyrir að brúttókostnaður fyrir ríkissjóð verði um 27 milljarðar kr. miðað við gefnar forsendur.

Fyrsti minni hluti telur mikilvægt bæði til að skapa hvata til að fyrirtæki velji frekar að halda ráðningarsambandi við launafólk ef kostur er og einnig af réttlætisástæðum að fyrirtækin endurgreiði stuðninginn til ríkissjóðs eftir því sem afkoma og afkomubati leyfir. Þannig greiði fyrirtæki tekjuskattsauka fyrst árið 2023 og að hámarki næstu tíu ár. Endurgreiðslan verði í formi tekjuskattsauka sem svari 10 prósentustigum til viðbótar núverandi tekjuskattsprósentu. Viðbótartekjuskatturinn dragist frá höfuðstól stuðningsins. Uppsafnað skattalegt tap hafi ekki áhrif á tekjuskattsaukann. Fyrirtækin geti hvenær sem er greitt stuðninginn upp að fullu og losnað þannig undan tekjuskattsaukanum og öðrum kvöðum sem því fylgja að hafa tekið við stuðningsgreiðslu úr ríkissjóði.

Með þessari leið greiða fyrirtæki sem standa best að vígi árin eftir að faraldurinn hefur gengið yfir, stuðninginn hratt upp með tekjuskattsaukanum en þau sem ekki ná sér eins vel á strik minna í krónum talið og ekkert eftir árið 2033 þegar tekjuskattsaukinn fellur niður. Aðferð þessari svipar til þess sem sex virtir hagfræðingar hafa lagt til við Evrópusambandið vegna stuðnings ESB-ríkja sem tengist kórónuveirufaraldrinum. Greinargerð hagfræðinganna er aðgengileg á vefnum og í nefndarálitinu sem ég mæli hér fyrir er slóðin tilgreind, þannig að hv. þingmenn geta kynnt sér málið. Hagfræðingarnir leggja til að það fari fram þarfagreining, það er gert mat á þeim fyrirtækjum sem fá stuðning og hann er endurkrefjanlegur að mestu leyti með einhvers konar hlutfallsútreikningum eftir því hvernig fyrirtækjunum tekst að rétta úr kútnum.

Fyrsti minni hluti leggur til breytingar á 8. og 9. gr. frumvarpsins í þessa veru. Þær breytingartillögur má finna á þskj. 1537.

Frú forseti. 1. minni hluti telur að fyrirtæki og auðmenn sem hafa nýtt sér skattaskjól hafi brotið gegn mikilvægum þætti samfélagssáttmálans, þ.e. þeim þætti sem gengur út á að skattgreiðslur og greiðslur opinberra gjalda séu nokkurs konar iðgjöld vegna þeirrar samtryggingar sem einkennir norræn velferðarsamfélög. Þannig lítur 1. minni hluti á að með því að draga fé undan skattgreiðslum með nýtingu skattaskjóla hafi fyrirtæki og einstaklingar gefið skýrt til kynna að viðkomandi hyggist standa á eigin fótum í blíðu og stríðu og þeir aðilar hafi í raun sagt sig sjálfir frá stuðningi úr ríkissjóði.

Fyrsti minni hluti getur ekki sætt sig við að auðmenn nýti sér skattaskjól en láti almenning bera uppi samfélagið með skattgreiðslum. Milljarðar króna liggja í skattaskjólum sem fólk felur svo að það þurfi ekki að greiða sinn hlut til samfélagsins, til heilbrigðisþjónustu, í vegi, löggæslu eða þróunaraðstoð svo dæmi séu tekin.

Panamaskjölin sýndu að umfang aflandsvæðingar íslensks efnahagslífs var einstakt í heiminum á þeim tíma sem gögnin náðu til. Ástæða er til að ætla að það sé enn stundað hér á landi. Slíka starfsemi ætti ekki að styrkja með almannafé enda grefur hún undan velferðarsamfélaginu.

Í umræðu í þingsal um önnur stuðningsfrumvörp ríkisstjórnarinnar vegna heimsfaraldurs kórónuveiru hafa stjórnarþingmenn haldið því fram að skilyrði um skil á CFC-skýrslum og upplýsingum um raunverulega eigendur útiloki fyrirtæki sem nýta sér skattaskjól eða aflandsfélög frá stuðningi úr ríkissjóði. Samfylkingin hefur bent á að svo sé ekki en við litlar undirtektir stjórnarþingmanna. Til að taka af allan vafa um túlkun Skattsins á skilyrðunum óskaði fulltrúi Samfylkingarinnar eftir skriflegu svari frá Skattinum við tilbúnum dæmum um fyrirtæki sem hugsanlega óskuðu eftir stuðningi, svari um hvernig eða hvort skilyrðin í frumvarpinu útilokuðu fyrrnefnda aðila. Því er skemmst frá að segja að Skatturinn telur að þeir sem nýta sér skattaskjól séu ekki útilokaðir frá stuðningi úr ríkissjóði samkvæmt skilyrðum sem fram eru sett í frumvarpinu.

Mér fannst, frú forseti, mjög mikilvægt að fá þetta skriflegt frá Skattinum sem er sá aðili sem úrskurðar um hvernig skilyrðin síðan virka. Svona er þetta, alveg sama hvað hv. stjórnarþingmenn segja hér í umræðu um þetta frumvarp eða annað. Þessi skilyrði halda ekki gagnvart þeim aðilum sem nýta sér skattaskjól. Þannig er það. Og þannig vill stjórnarmeirihlutinn haga hlutunum. Það getum við í Samfylkingunni illa sætt okkur við.

Fulltrúi Samfylkingarinnar í efnahags- og viðskiptanefnd, sú sem hér stendur, hefur áður lagt fram tillögu um að útiloka þá sem nýta sér skattaskjól og aflandsfélög frá stuðningi úr ríkissjóði vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Sú tillaga var felld. Engu minni ástæða er nú en þá að leggja fram slíka tillögu og er það því gert að nýju með breyttu sniði en sama markmiði.

Í breytingartillögu sem 1. minni hluti leggur fram á sérstöku þingskjali eru lagðar til breytingar á 1. gr. Þar er miðað við að til þess að öðlast rétt á stuðningi samkvæmt lögunum þurfi að liggja fyrir að viðkomandi félag hér á landi eða raunverulegur eigandi þess hafi ekki átt í fjárhagslegum samskiptum við aðila sem staðsettur er á lágskattasvæði sl. þrjú ár. Formleg en óvirk tengsl af þessum toga hafa því ekki áhrif á rétt hans. Tengslin þurfa að hafa verið virk sl. þrjú ár. Framkvæmdin verður á grundvelli yfirlýsingar viðkomandi félags eða raunverulegs eiganda þess um að skilyrðin séu uppfyllt. Það krefst ekki vinnu í stjórnsýslunni við að staðreyna réttinn fyrir fram í einstökum tilvikum. Verði viðkomandi síðar uppvís að því að hafa gefið rangar upplýsingar verður hann krafinn um endurgreiðslu og viðurlögum beitt. Þessi vinnubrögð eru í samræmi við það sem almennt tíðkast í skattastjórnsýslunni.

Munurinn á þessari tillögu og þeirri tillögu sem búið er að fella hér í þinginu við afgreiðslu annarra stuðningsfrumvarpa er sá að það er verið að tala um virk tengsl. Hafi einhver eignast aflandsfélög þegar aflandsvæðing atvinnulífsins var mjög mikil hér á árum áður, árunum fyrir hrun, og það félag ekkert verið nýtt og engin starfsemi eða virk tengsl þar á milli undanfarin þrjú ár, er allt í fína lagi. En ef tengslin eru virk og sannarlega er verið að nýta sér skattaskjól með þeim hætti þá eigum við ekki að styrkja slík fyrirtæki með almannafé.

Frú forseti. 1. minni hluti leggur til að sett verði skilyrði um áætlun í loftslagsmálum fyrir stuðningi samkvæmt frumvarpinu. Með skilyrðinu setja stjórnvöld loftslagsmál á dagskrá og krefjast þess um leið að fyrirtækin geri það einnig.

Í breytingartillögu sem 1. minni hluti leggur fram á sérstöku þingskjali eru lagðar til breytingar á 4. tölulið 4. gr. frumvarpsins. Lagt er til að gerð verði krafa um að fyrirtæki skili gögnum um losun gróðurhúsalofttegunda á árinu 2019 og leggi fram áætlun um minni losun gróðurhúsalofttegunda árlega næstu fimm árin. Skilyrðið eigi við fyrirtæki sem segir upp 10 starfsmönnum eða fleiri í fullu starfi. Stuðningur við uppsögn 10 starfsmanna í fullu starfi nemur samkvæmt frumvarpinu rúmri 21 millj. kr. vegna launa starfsmannanna og lífeyrissjóðsiðgjaldshluta atvinnurekenda.

Mikilvægt er að stjórnvöld geri kröfur í loftslagsmálum samfara stuðningi við fyrirtæki. Glíman við loftslagsvandann og loftslagshamfarir af mannavöldum stendur yfir og vandinn sem henni fylgir er óleystur. Þessi glíma er stærsta viðfangsefni mannkyns og verður það áfram þegar faraldurinn er genginn yfir.

Skilyrðið er ekki íþyngjandi fyrir fyrirtækin og auðvelt í framkvæmd. Bókhald fyrirtækja fyrir árið 2019 liggur fyrir og nýta má þær upplýsingar til að færa losunarbókhaldið. Í nefndarálitinu sem ég mæli hér fyrir er sett fram slóð á síðuna samfélagsábyrgð.is og þar má finna hvernig færa má slíkt bókhald og það eru góðar leiðbeiningar á síðunni. Þetta skilyrði er því ekki íþyngjandi fyrir fyrirtæki sem segir upp tíu manns eða fleiri í fullri stöðu en setur hins vegar loftslagsmálin á dagskrá hjá fyrirtækinu hafi þau ekki þá þegar verið komin á dagskrá. Þetta er mikilvægt skilyrði í sjálfu sér þó að það sé ekki íþyngjandi eða einhver stórkostleg pappírsvinna sem því fylgir, heldur er það ákveðin viðurkenning á vanda, á loftslagsvánni sem við þurfum öll að hjálpast að við að takast á við líkt og þann faraldur sem við erum að glíma við núna.

Eitt af skilyrðum framlengingar hlutabótaleiðar er að þeir njóti ekki stuðnings sem hafi greitt eigendum sínum eða æðstu stjórnendum mánaðarlaun sem nema hærri fjárhæð en 3 millj. kr. til hvers og eins. Til einföldunar er mikilvægt að skilyrði fyrir stuðningi sé sem líkast í báðum frumvörpunum. Freistandi gæti verið að velja annað úrræðið umfram hitt einungis vegna mismunandi skilyrða fyrir stuðningi. Þess ber að geta að framangreind fjárhæð tekur mið af fjórföldum reglulegum heildarlaunum að meðaltali fyrir launamenn í fullu starfi samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands, að teknu tilliti til breytinga á launavísitölu Hagstofunnar. Þetta kemur fram í greinargerð með frumvarpi um hlutabótaleiðina. Það er mjög einkennilegt ef sett er slíkt skilyrði í hlutabótaleiðinni en ekki þegar er verið að hjálpa fyrirtækjum að segja upp fólki, með sérstökum styrkjum til þess, eins og í frumvarpinu sem við ræðum hér.

Frú forseti. Samfylkingin styður breytingartillögu meiri hlutans við frumvarpið en tekur þó fram með breytingartillögu 1. minni hluta verður engin tekjufærsla á stuðningnum með þeim flækjum sem 8. og 9. gr. frumvarpsins gera ráð fyrir.

Mikilvægt er að miða við stöðu fyrirtækja 1. apríl 2020, í stað 1. mars, þar sem tekjufall sumra fyrirtækja varð ekki verulegt fyrr en liðið var á marsmánuð.

Gegnsæi og gott aðgengi að upplýsingum um stuðning úr ríkissjóði er afar mikilvægt. Almenningur á rétt á því að fá að vita í hvað opinberum fjármunum er ráðstafað. Með birtingu upplýsinganna felst einnig ákveðið aðhald og hún auðveldar eftirlit. Breyting á 14. gr. í þá veru að Skattinum sé skylt að upplýsa um nöfn styrkþega og um fjárhæð stuðnings til hvers aðila fyrir sig er nauðsynleg og Samfylkingin tekur undir þá breytingartillögu meiri hlutans.

Frú forseti. Það eru alvarlegir gallar á þessu frumvarpi eins og ég hef rakið hér. Það er sannarlega ástæða til að hafa áhyggjur af samspili á milli hlutabótaleiðar og þeirrar leiðar sem hér er rædd, að greiða hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti. Því miður hef ég miklar áhyggjur af því að þetta verði misnotað vegna þess að skilyrðin eru ekki nægileg og það er ekki nægur hvati til þess að huga að réttindum launamanna frekar en högum þeirra sem halda á hlutabréfum fyrirtækjanna. Þetta blasir við.

Frú forseti. Ef breytingartillögurnar sem Samfylkingin leggur fram verða samþykktar mun frumvarpið skána mikið og við treystum okkur til að styðja það. En án þeirra breytinga getum við í Samfylkingunni ekki stutt frumvarpið. Það er of gallað eins og ég hef farið hér vandlega yfir. Ég vona að hv. þingmenn átti sig á því, líkt og við í Samfylkingunni, að það eru ákveðnar hættur fólgnar í því að samþykkja þetta frumvarp óbreytt.