150. löggjafarþing — 109. fundur,  28. maí 2020.

stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.

811. mál
[16:46]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þingmaðurinn telur ómögulegt að útfæra lagaákvæði um aukinn rétt launafólks í tengslum við þetta frumvarp án víðtæks samráðs. En frumvarpið sem við erum með í höndunum felur í sér 25 milljarða hvata handa fyrirtækjum til þess að segja upp launafólki. Samráðið þar að baki var ekkert gríðarlegt. Ég myndi halda að breyting af því tagi sem við ræddum hér í fyrri umferð sé vel viðráðanleg og innan þess sem þingið getur gert og hefur oft gert í málum af þessu tagi.

Ég velti fyrir mér hvort við séum að detta niður á ákveðna tilhneigingu hjá stjórnarliðum að nýta ekki ferðina, þar sem við veitum alveg gríðarlega peninga, (Forseti hringir.) gríðarlegt fjármagn, úr sameiginlegum sjóðum, til að styrkja atvinnulífið í gegnum Covid-krísuna. Við nýtum ekki ferðina til að ná fram öðrum markmiðum. Þá detta mér t.d. í hug grænu markmiðin sem hv. þingmaður og hv. þm. Oddný Harðardóttir ræddu, (Forseti hringir.) og það sem við ræddum varðandi rýmri heimildir lífeyrissjóðanna til að fjárfesta í nýsköpunarfyrirtækjum (Forseti hringir.) hér fyrr í mánuðinum. Þá var ekki heldur hægt að nýta tækifærið til að hafa grænar fjárfestingar sem skilyrði.