150. löggjafarþing — 109. fundur,  28. maí 2020.

stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.

811. mál
[16:48]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Þingmaðurinn talar um að nota ferðina og það geta alveg verið tilefni til að nota ferðina, eins og hann orðaði það. En það sem ég sagði áðan er að þegar ekki er samhljómur í þeim viðbrögðum sem maður fær frá forsvarsmönnum launamanna um að taka á þessu atriði við gerð þessa frumvarps er erfitt að ætla að stíga það skref að einhverju leyti í a.m.k. núningi við þá sömu hreyfingu. Ég vil leiðrétta það sem hv. þingmaður sagði áðan, hann tók svo til orða að 25 milljarða hvati til að segja upp starfsfólki væri innifalinn í frumvarpinu. Ég tel alls ekki að svo sé. Í frumvarpinu er vissulega gert ráð fyrir að umtalsverðar fjárhæðir geti fallið á ríkissjóð en það er ekki vegna þess að ríkissjóður sé að hvetja fyrirtæki til þess að segja fólki upp. (Forseti hringir.) Það er vegna þess að verið er að reyna að tryggja með öllum ráðum að það verði til fyrirtæki (Forseti hringir.) sem fólk geti mætt aftur til vinnu hjá þegar við komum upp úr þessari krísu.