stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp sem ég tel að muni endast illa. Hv. þm. Smári McCarthy kemst svo að orði í nefndaráliti sínu um málið, með leyfi forseta:
„Þetta frumvarp ríkisstjórnarinnar mun eflaust bjarga einhverjum þeirra en augljóst er að þó nokkur hluti þeirra mun eigi að síður hætta rekstri. Svarið er ekki fólgið í einu risastóru sleggjufrumvarpi heldur mörgum minni og hnitmiðaðri aðgerðum. 2. minni hluti telur líklegt að sagan muni dæma þetta úrræði sem mistök þar sem hagsmunum og stöðugleika þorra launamanna var fórnað fyrir hagsmuni nokkurra fyrirtækjaeigenda.“
Ég tek undir þessi orð hv. þm. Smára McCarthys.
Ég tel, rétt, eins og fram hefur komið í máli annarra þingmanna í stjórnarandstöðu, að þetta frumvarp feli í sér hvata til fyrirtækja til að segja upp fólki. Ég tel einnig að sagan muni sýna okkur hversu margar uppsagnir á þessu tímabili við getum síðan rakið beint til þessa frumvarps, vegna þess að í stað þess að hugsa upp nýjar valdeflandi leiðir fyrir launafólk til að sigla þennan ólgusjó hafi ríkisstjórnin ákveðið að vernda eignir og hag fyrirtækja umfram réttindi launafólks, þvert á uppgefin markmið hlutabótaleiðarinnar, sem er jú að viðhalda ráðningarsambandi.
Virðulegi forseti. Stundum er sagt að vegurinn til helvítis sé varðaður góðum ásetningi. Eflaust er hann til staðar hér. Spyrja má í garð hvers ásetningurinn sé góður, en ég tel að hv. þingmenn, stjórnarliðar, hljóti að telja sig vera að gera vel. Mér þykir samt miður að í umræðum í risavöxnu úrræði ríkisstjórnarinnar, þar sem áætlaður kostnaður við ríkisstyrktar uppsagnir er 27 milljarðar, skulu heilir þrír stjórnarliðar taka þátt í 1. og 2. umr. um þetta risavaxna mál — þrír. Ég spyr: Hver er ásetningur stjórnarliða? Mér þykir ekki nóg að heyra frá þremur þeirra um hvað þeir telji sig vera að gera með þessu, vegna þess að við í minni hlutanum höfum komið með skiljanlega gagnrýni, með stórar spurningar en fátt hefur verið um svör.
Það er verulega óheppilegt að ekki skuli vera fleiri þingmenn á Alþingi sem sjá sér fært að lýsa skoðunum sínum á þessari risavöxnu aðgerð ríkisstjórnarinnar, verulega óheppilegt, vegna þess að það eru mjög stór atriði sem mér finnst að þurfi að útkljá í þessum sal fyrir allra augum. Að afstaða annarra þingmanna í stjórnarandstöðunni sé skýr. Hvað er þessi góði ásetningur, sem stjórnarliðar telja eflaust að leiði okkur, ekki til helvítis heldur eitthvert annað, væntanlega á betri stað? Mér þykir leitt að heyra ekki meira af því. Það eru vonbrigði.
Ég tel að frumvarpið komi ekki í veg fyrir misnotkun á þessari aðstoð ríkisstjórnarinnar og ég tel einnig mjög óheppilegt að við séum að ræða þetta mál á undan framlengingu á hlutabótaleiðinni, sér í lagi þegar við erum nýbúin að fá í hendur svarta skýrslu Ríkisendurskoðunar um misnotkun á hlutabótaleiðinni. Ég hefði talið einboðið að við tækjum umræðu um málið eftir að við erum búin að fara yfir hvað fór úrskeiðis í hlutabótaleiðinni og hvernig gera megi betur til að koma í veg fyrir misnotkun á almannafé á þessum viðsjárverðu tímum, jafnvel þótt það þýði að þingmenn á þessu þingi þurfi að mæta hér á laugardegi, eða, guð forði mér, á sunnudegi, sem ég held að hafi bara aldrei gerst á minni fjögurra ára þingsetu, til að afgreiða þetta mál fyrir mánaðamót svo við getum rætt bæði málin saman, í samhengi, og með allar upplýsingar uppi á borðum.
Ríkisendurskoðandi benti á eftirfarandi í skýrslu sinni um hlutabótaleiðina, með leyfi forseta:
„Af þessu má ráða að sá samdráttur sem vinnuveitendur vísa til þegar starfshlutfall starfsmanna er lækkað verður að vera vegna Covid-19. Þá má einnig benda á að samdrátturinn verður að leiða til rekstrarvanda hjá fyrirtækjum og af þeim sökum ættu fyrirtæki með sterkan efnahag að geta staðið af sér tímabundna rekstrarsveiflu án þess að þurfa að grípa til uppsagna starfsfólks eða lækkunar á starfshlutfalli. Allt þetta eru atriði sem Vinnumálastofnun ber að leggja til grundvallar þegar meta á hvort heimilt sé eða heimilt hafi verið að greiða hlutabætur til launamanna.“
Virðulegi forseti. Samdrátturinn verður að leiða til rekstrarvanda hjá fyrirtækjunum. Það kemur ekki fram í þessu frumvarpi þótt hagur hefði verið að því ef þessar tvær nefndir hefðu talað sig saman með formlegum hætti um hvaða skilyrði væru gáfuleg áður en 27 milljörðum og 34 milljörðum af áætluðum kostnaði ríkissjóðs er útdeilt með of illa ígrunduðum skilyrðum. Ef nefndirnar hefðu tekið sig saman, tekið sér aðeins betri tíma og gefið sér líka tíma í að lesa skýrslu ríkisendurskoðanda um hlutabótaleiðina og ákveðið að fresta umfjöllun um þetta mál, svona rétt í millitíðinni, hefði verið hægt að skoða frekari leiðir til að koma í veg fyrir misnotkun. En áfram veginn. Einhvern veginn tel ég mig vita að litlu verði breytt í frumvarpinu úr þessu og að það verði að lögum á morgun, sama hvað hver í stjórnarandstöðu tautar og raular og án þess að fleiri stjórnarþingmenn komi hér upp til þess að réttlæta alla þessa gjörninga.
Í skýrslu ríkisendurskoðanda kemur fram að of margir aðilar sem ekki áttu við bráðan rekstrarvanda að stríða nýttu sér hlutabótaleiðina. Ég fæ ekki séð að þetta frumvarp taki að nokkru marki fyrir það að fyrirtæki, sem ekki eiga í bráðum rekstrarvanda, nýti þessa leið, þótt þeim takist að uppfylla það skilyrði, eins og fram kemur í 2. tölulið 4. gr. frumvarpsins, um að meðaltal mánaðartekna viðkomandi til uppsagnardags hafi dregist saman um a.m.k. 75% í samanburði við eitt af fjórum eftirtöldum tímabilum sem fyrirtæki geta valið sér að miða við. Þetta er eina skilyrðið um svokallaðan rekstrarvanda þessara fyrirtækja. Fyrirtæki þarf ekki að sýna fram á að það búi við raunverulegan rekstrarvanda. Það þarf ekki að sýna fram á að það geti ekki greitt uppsagnarfrest án þess að fara í þrot eða að það geti ekki sjálft tekið á sig 75% samdrætti tímabundið og samt sem áður sleppt því að reka starfsfólk á kostnað ríkisins. Það er ekki að finna í þessu frumvarpi og ég hef ekki fengið nein svör þess efnis að þar séu einhver skilyrði um það.
Ég vil líka velta því upp að ríkið skuli gefa það út að það muni styðja fyrirtæki við greiðslu á uppsagnarfresti þegar við vitum að við erum að sigla inn í mikið atvinnuleysi, gríðarlega mikið atvinnuleysi. Og við vitum að fyrirtækin geta að afloknum þriggja mánaða uppsagnarfresti ráðið þetta sama starfsfólk aftur á lægri launum, að þannig myndist talsverður þrýstingur á þetta sama starfsfólk að láta reka sig, fá uppsagnarfrest í þrjá mánuði frá ríkinu, vinna alla þá þrjá mánuðina, vegna þess að það stendur líka til samkvæmt þessu frumvarpi, og vera svo ráðið aftur á lægri launum að því loknu og hafa um það lítið val. Því að hvert er atvinnustigið í landinu akkúrat núna? Það er ekki sérlega beysið. Á sama tíma stendur ekki til að hækka grunnatvinnuleysisbætur sem nokkru nemur. Í hvaða hús á fólk að leita sem er boðinn þessi díll? Þessi díll er, eins og ég skil það, fullkomlega lögmætur — á kostnað skattgreiðenda, takk.
Ég tel að þetta frumvarp sé röng leið til að leysa vandamál sem vissulega eru til staðar. Ég tel að ríkisstjórnin hefði frekar mátt huga að hugmyndum um að flýta fjárhagslegri endurskipulagningu, eins og er til umræðu, hugmyndum um skilyrðislaust aðgengi að Atvinnuleysistryggingasjóði fyrir launamennina sjálfa með einhvers konar bakreikningi eða samkomulagi við vinnuveitendur þar um án skyldu til vinnuframlags. Það hefði strax verið heillavænlegri leið en að gefa það út á blaðamannafundi með pompi og prakt að ríkisstjórnin ætlaði sér að styrkja uppsagnir. Hversu margar uppsagnir sáum við í kjölfarið? Þær voru bara töluvert sögulegar.
Herra forseti. Að lokum vil ég vísa í meirihlutaálit efnahags- og viðskiptanefndar þar sem fram kemur að markmið framangreindra aðgerða stjórnvalda, sem er langur listi yfir allt sem ríkisstjórnin hefur verið að gera, sé þríþætt. Í fyrsta lagi sé markmiðið að tryggja stöðu launafólks og verja ráðningarsamband þess. Það finnst mér skrýtin setning, að verja ráðningarsamband launafólks og að það sé markmiðið sem tilgreint er í uppsagnarfrumvarpinu. Ég tel að þessi aðgerð gangi beinlínis gegn því markmiði ríkisstjórnarinnar að verja ráðningarsamband milli launafólks og atvinnurekenda. Og að það gangi beinlínis gegn markmiðum hlutabótaleiðarinnar sem við eigum að samþykkja hér samhliða þessu frumvarpi. Þessi markmið eru andstæð. Ég tel ekki rétt að ræða þetta tvennt á þann öfuga hátt eins og mér finnst gert hér, að við ræðum uppsagnarleiðina fyrst og svo framlengingu á hlutabótaleiðinni án þess að hafa gefið okkur fullnægjandi tíma í að leggjast yfir þær skýru og mikilvægu ábendingar sem ríkisendurskoðandi kemur með varðandi notkun hlutabótaleiðarinnar, og æðum af stað í uppsagnir á undan því. Ég tel líka að byrjað sé á öfugum enda, virðulegi forseti.
Að því sögðu tel ég mikilvægt að vilji fólk styðji þetta frumvarp, að það leggi sig alla vega fram við að lesa breytingartillögur hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur, 1. minni hluta, og samþykki þær alla vega svo það sé alveg öruggt að fyrirtæki sem notast við skattaskjól í viðskiptum sínum hafi ekki aðgang að þessum úrræðum. Ég tel að það sé grundvallarforsenda fyrir því að það verði einhvers konar lágmarkssöguleg sátt um þetta mál.