stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Steindóri Valdimarssyni fyrir ræðuna. Ég hafði hugsað mér að koma hér í ræðu, ekki endilega í andsvar. Ég var að meginefni sammála hv. þingmanni, enda skrifuðum við undir sama nefndarálit meiri hluta sem hv. þingmaður og formaður efnahags- og viðskiptanefndar, Óli Björn Kárason, fór gaumgæfilega yfir fyrr í dag. En í lok ræðu sinnar orðaði hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson þetta svo vel að ég sá ástæðu til að koma hér upp í andsvar, þ.e. um að skilyrðin verði ekki svo ströng að þau kunni að koma í veg fyrir að markmiðin gangi upp og auki jafnvel á tjónið. Þetta finnst mér ná utan um það sem við erum að gera. Við erum farin að gleyma því að einhverju marki í umræðunni um hvað þetta snýst. Þá erum við komin í upphaf ræðu hv. þingmanns, ef við tölum um skilyrðin í 4. gr., 75% tekjufall.
Við getum ímyndað okkur fyrirtæki sem er í slíku tekjufalli, og sum hver í algjöru tekjufalli, 100%, með miklar fjárfestingar og háan fastan kostnað, sem staðan er hreinlega. Svo er meginþunginn í umræðunni hvort einhverjir kunni að reyna misnota þessi úrræði. Við erum að tala um algjöra neyðarstöðu. Ég verð að segja að mér fannst hv. þingmaður orða það svo vel í lok ræðu sinnar að ég sá ástæðu til að nýta tækifærið og koma upp í andsvar og draga það fram. Ég hefði annars reynt að fanga þetta með einhverjum hætti í sérstakri ræðu.