Menntasjóður námsmanna.
Hæstv. forseti. Við ræðum hið nýja frumvarp um Menntasjóð sem er í senn mjög þykkt og þétt frumvarp og boðar miklar breytingar. Það er mjög margt gott í frumvarpinu, verð ég að segja, og löngu tímabært að ráðast í breytingar á þeirri umgjörð sem er um námslán hér á landi og ég fagna því sérstaklega að tekið sé til styrkja í sambandi við námið. Ég vil byrja á því að nefna frétt sem var í Ríkisútvarpinu í byrjun september á síðasta ári þar sem hæstv. menntamálaráðherra sagði að hún vildi að íslenski lánasjóðurinn væri samkeppnisfær við þá norrænu og ég er henni sammála. Í fréttinni sagði einnig að umsóknum um námslán hjá LÍN hefði fækkað um helming á síðustu tíu árum. Það segir mér að sá sjóður hefur ekki virkað sem skyldi. Það er því full ástæða til að ráðast í breytingar á Lánasjóði íslenskra námsmanna, sem hér kallast Menntasjóður.
Við í allsherjar- og menntamálanefnd höfðum Menntasjóð til umfjöllunar á sjö fundum nefndarinnar og fengum fjölmarga gesti fyrir nefndina, enda er nauðsynlegt að ræða vel þetta mikilvæga mál. Nú þegar er búið að kalla málið aftur til nefndarinnar á milli 2. og 3. umr., sem er mjög gott. Ég vil nefna það atriði sem fram kemur síðast í nefndaráliti meiri hlutans, sem ég styð með fyrirvara, en hann er ekki mikill. Það varðar atriðið þar sem kveðið á um að endurskoða eigi lögin. Sá ræðumaður sem talaði á undan mér nefndi það atriði sérstaklega og ég er sammála því. Skoða á lögin í samvinnu við allsherjar- og menntamálanefnd og efnahags- og viðskiptanefnd.
Ég ætla ekki að tala mikið um þetta mál. Ég vildi bara merkja mig inn á það, eins og það kallast. Það er þó eitt atriði sem mér þykir mikilvægt að koma inn á, það er fjölgun starfsmanna hjá sjóðnum um 15 stöðugildi. Það er það atriði sem ég mun ræða sérstaklega þegar við fáum málið aftur til nefndarinnar. Nú vinna 35 manns við sjóðinn, held ég. Ég geri mér grein fyrir að auðvitað þarf að bæta í þegar málið verður flóknara, en mér finnst þetta dálítið vel í lagt. Ástæðan fyrir því að ég nefni það er að það kemur hvergi fram í minnisblaði sem við fengum frá menntamálaráðuneytinu hvers vegna þessi 15 manna fjölgun á að verða. Það er nauðsynlegt fyrir okkur í þessum sal að fá upplýst hvað það er sem liggur að baki, þó svo að ég viti að það verði flóknara lánafyrirkomulag með styrkjunum og að þjónustan verði aukin og þar með frekari upplýsingaskylda og einstaklingsbundnari nálgun á allan máta.
Þeir sem þurfa á námslánum að halda ná rétt svo að framfleyta sér með viðunandi hætti. Hér hefur verið rætt að við þurfum að hækka þetta viðmið og ég held að allir séu sammála um það. Reynt er að koma til móts við fólk varðandi framfærslu með ýmsum bótum, ef við getum kallað það svo, sem fara eftir barnafjölda og öðru slíku. En það er mjög mikilvægt að því sé haldið til haga að það verði jafnframt endurskoðað þegar fara á í heildarendurskoðun á regluverkinu í kringum sjóðinn og kanna hvernig til hefur tekist. Við vitum að Lánasjóður íslenskra námsmanna er nú bólginn af fjármunum vegna þess að fólk tekur ekki lán, sem er sjálfsagt vegna þess að það þykir ekki hagstætt. Það er örugglega einkum vegna þess með hvaða hætti greiða þarf lánin til baka. Það er líka erfitt fyrir fólk að vera í námi og einkum núna, eins og fyrri ræðumenn hafa komið inn á. Í þeim aðstæðum sem eru í þjóðfélaginu er erfitt fyrir námsmenn að fá vinnu og það er beinlínis ósanngjarnt að námsmenn eigi ekki tækifæri á hlutabótum þar sem laun þeirra eru einnig greidd í Atvinnuleysistryggingasjóð. Ég vil hrósa stjórnvöldum fyrir að skapa þessi störf, svokölluð sumarstörf. Þau eru kannski ekki nægjanlega mörg en þó eigum við eftir að sjá sveitarfélögin koma með sinn pott sem getur hugsanlega gagnast einhverjum, ég vona það alla vega.
Þá er hægt að draga vandann saman í það að námsmenn búa við marga óvissuþætti og það er einkum hin fjárhagsleg óvissa sem þeir hafa áhyggjur af. Þegar margir hefja nám eru þeir jafnframt að hefja búskap og þar með rekstur heimilis og það er kostnaðarsamt og erfitt að finna ódýrt húsnæði. Enn og aftur erum við því að tala um framfærsluviðmiðin.
Ég held að út af standi aðeins hugmyndir um að við hefðum viljað gera betur við að afskrifa frekar lánaábyrgðir. Við fengum minnisblað frá menntamálaráðuneytinu, að ég held frekar en fjármála- og efnahagsráðuneyti, um að það hafi þótt of kostnaðarsamt. En við skulum sjá hvort það verði ekki raunin þegar upp er staðið.
Það er mikilvægt atriði sem fram kemur um námsframvindu. Og það er mikilvægt að undanþáguákvæði séu í frumvarpinu sem kveða á um þá sem haldnir eru lesblindu, eiga við sérstaka námsörðugleika að stríða o.s.frv. Mér finnst það mjög góður punktur og virkilega vel að því staðið að tekið sé til þess. Ég ítreka enn og aftur að það er mikilvægt að skoða þetta mál eftir þrjú ár, eins og margoft hefur komið fram.
Mig langar aðeins að nefna eina hugmynd; þó að ég hafi ekki sagt það í ræðu minni hér þá man ég eftir góðum prófessor sem kenndi mér við Háskóla Íslands sem talaði um ECTS-einingar á íslensku sem ektur. Mér þætti vænt um að þar sem við erum að tala um íslenskt nám myndum við íslenska þá skammstöfun og tala um ektur í stað ECTS-eininga.
Þá hef ég lokið máli mínu.