Menntasjóður námsmanna.
Herra forseti. Ég þakka þessa umræðu. Hér er á ferðinni mikilvægt frumvarp, og margt gott við það, sem felur í sér hinn nýja Menntasjóð námsmanna sem tekur við af Lánasjóði íslenskra námsmanna. Það er óhætt að segja og við þekkjum það að menntun er grunnstoð samfélagsins og eitt stærsta samfélags- og efnahagsmál dagsins í dag. Menntun er grundvallarstoð atvinnu og nýsköpunar í landinu, menntun er grunnstoð verðmætasköpunar í hagkerfinu og styrkir getu þess til að mæta alþjóðlegri samkeppni. Það er því til mikils að vinna að tryggja öllum þjóðfélagshópum aðgang að menntun við sitt hæfi óháð bakgrunni og aðstæðum.
Með frumvarpi þessu, sem er gott að hefur loksins litið dagsins ljós, er lagt til, eins og komið hefur fram, að innleiða nýtt námsstyrkjakerfi samhliða námslánakerfi. Eins og ég sagði í upphafi er margt ágætt í frumvarpinu sem ég ætla að fara aðeins betur yfir. Helstu breytingarnar frá núverandi kerfi sem lagðar eru til með frumvarpinu eru að þeir sem ljúka prófgráðu innan tilgreinds tíma geta fengið námsstyrk sem nemur 30% af höfuðstól námsláns auk þess sem námsstyrkur verður veittur vegna framfærslu barna lánþega. Ég fagna sérstaklega innleiðingu beins styrkjakerfis enda hafa stúdentar lengi beðið eftir styrkjakerfi. Við höfum fyrirmyndina frá Norðurlöndum sem dæmi og eðlilegt að við horfum til þeirra í þessum efnum, finnst mér. Auk þess er það mjög jákvætt sem kemur fram í 15. gr. frumvarpsins um styrk vegna framfærslu barna. Ég tel að innleiðing þess sé mikið framfaraskref. Það eru margir námsmenn sem hafa börn á sínu framfæri og það fylgir því að sjálfsögðu kostnaður, eins og allir vita, þannig að þetta er gott og jákvætt skref að mínu mati.
Í gögnum hefur komið fram að gerð hafi verið samanburðarkönnun á högum evrópskra háskólanema í 28 ríkjum í Evrópu og þar kemur fram að íslenskir námsmenn hafa almennt fjárhagslegar áhyggjur og meta fjárhagsstöðu sína slæma, sem er að sjálfsögðu áhyggjuefni og nauðsynlegt að taka tillit til þeirrar niðurstöðu og reyna að finna leiðir til að bæta úr því. Vonandi er þetta frumvarp liður í því.
Í frumvarpinu taka lánakjör námsmanna miklum breytingum í samanburði við núverandi lánasjóðskerfi. Lánþegum stendur til boða að velja á milli verðtryggðs og óverðtryggðs láns og vextir skulu vera breytilegir og byggja á vaxtakjörum sem ríkissjóði bjóðast á markaði að viðbættu föstu vaxtaálagi, eins og segir. Það er náttúrlega viðbúið að vextir geti hækkað nema, eins og lagt er upp með, sett verði þak á vextina, sem er mjög jákvætt. Í núverandi kerfi eru vextir verðtryggðra lána um 1% og hafa verið þannig frá 1992 en námslán báru enga vexti fyrir þann tíma. Hins vegar er varðandi vaxtakjörin sú hætta að þau taki breytingum, þ.e. miðað við vaxtakjör ríkisins almennt. Ef farið hefði verið eftir því fyrirkomulagi sem lagt er upp með hér hefðu vextirnir verið mun hærri, t.d. í efnahagskreppunni, og þess vegna styð ég mjög að sett verði þak á þessa vexti. Ég held að það sé skynsamlegasta leiðin og vonandi verður það niðurstaðan.
Í greinargerð um 17. gr. kemur fram að áfram verði lánakjör námsmanna töluvert hagstæðari en lánakjör sem almennt bjóðast á lánamarkaði til einstaklinga, enda byggja grunnvextir á sömu fjármögnunarkjörum og ríkissjóður fær á markaði. Hins vegar má gera ráð fyrir sveiflum þarna á. Það er ljóst að þeir stúdentar sem koma verst út úr þessu kerfi eru þeir sem hljóta ekki þennan 30% styrk eða niðurfellingu. Á móti kemur að auðvitað er þetta hvatning til að sinna náminu vel og það er mjög gott mál.
Ég vildi aðeins koma inn á að það er ekki alveg nægilega skýrt til hvaða ráðstafana eigi að grípa þegar rætt er um nefndina sem lýtur að vaxtamálum. Það er spurning hvort það geti skapað falskt öryggi, eins og kemur fram hjá Landssamtökum íslenskra stúdenta sem veittu umsögn um frumvarpið, ágætisumsögn. Þau leggja svolítið upp úr því að þessi nefnd hafi skýrar valdheimildir og hún þjóni tilgangi sínum.
Mig langaði að koma næst að undanþágum frá lágmarksnámsframvindu. Samkvæmt 13. gr. verður það í höndum sjóðstjórnar að mæla fyrir um framkvæmd undanþágu frá kröfu um lágmarksnámsframvindu. Skilgreindar undanþágur frá kröfum um námsframvindu teljast ekki til seinkunar samkvæmt 14. gr. og því er ljóst að mikið er í húfi fyrir stúdenta þegar verið er að sækja um undanþágu. Í umsögn LÍS leggja samtökin áherslu á að ekki megi ríkja óvissa um hvort stúdent falli undir tilteknar undanþágur vegna breytinga á úthlutunarreglum heldur þurfi ramminn að vera eins skýr og mögulegt er í lögunum. Við greinina hefur verið bætt tveimur þáttum sem veitt geta undanþágu frá lágmarksnámsframvindukröfu, sem eru lesblinda og sértækir námsörðugleikar. Þetta er að sjálfsögðu mjög jákvætt og ég fagna þessu sérstaklega.
Aðeins varðandi endurgreiðslu námslána. Auk verðtryggðu lánanna, sem eru eina valið í núverandi kerfi, verður boðið upp á óverðtryggt lán. Í stað þess að endurgreiðsla lánsins hefjist tveimur árum eftir að námi lýkur verður það einu ári eftir námslok, eins og fram kemur í 19. gr. Ég tel, herra forseti, að eitt ár sé skammur tími í þeim efnum og dugi varla til að létta þá skuldabyrði sem safnast upp hjá námsmönnum, eins og hjá þeim sem eru að koma úr löngu námi. Það er þekkt að þegar menn koma úr námi er svolítið erfitt að fara að greiða strax af námslánum. Ég þekki þetta sjálfur, tók námslán á sínum tíma og mjög mikilvægt er að hafa það svigrúm að þurfa ekki að greiða strax af lánunum. Ég hefði því viljað sjá að gerð yrði breyting í þeim efnum eða a.m.k. bara haldið sama fyrirkomulagi og nú er. Í stað tekjutengingar endurgreiðslna verða lán almennt jafngreiðslulán líkt og hefðbundin húsnæðislán og lántakendum, sem eru 35 ára og yngri þegar námi lýkur og með verðtryggð lán, gefst kostur á að velja tekjutengdar afborganir. Árin eftir námslok geta verið fólki fjárhagslega erfið og það er nauðsynlegt að fleiri undanþágur standi lánþega til boða til þess að fresta upphafi endurgreiðslna. Það er þó til bóta frá núverandi kerfi að afborgun lána fari fram mánaðarlega, eins og kemur fram í 3. mgr. 19 gr. frumvarpsins.
Fyrirkomulag námsmannastuðnings á Íslandi er þannig að enginn stuðningur er veittur nema tekið sé lán. Þannig má segja að námsmenn séu í raun og veru hvattir til þess að skuldsetja sig og athygli vekur að styrkur er aðeins greiddur þeim sem taka lán. Þá er spurning um þá sem ákveða að taka ekki lán, hafa burði til þess, hafa kannski unnið með námi eins og margir gera, það eru náttúrlega dæmi um að námsmenn vilja komast hjá því að taka námslán og sumir geta það, en þeir hafa ekki aðgang að styrk sem mér finnst svolítið umhugsunarefni hvort ekki eigi einnig að vera í boði fyrir þá.
Mig langar að minnast á umsögn Félags læknanema í Ungverjalandi um frumvarpið. Félagið segir að með frumvarpinu sé vegið að getu læknanema erlendis til að stunda nám í læknisfræði. Þetta eru svolítið alvarlegar athugasemdir að mínum dómi. Nefnt er í umsögninni að fram komi í frumvarpinu að framfærslulánið skuli nægja hverjum námsmanni til að standa straum af framfærslukostnaði miðað við íslenska framfærslu en kostnaður við framfærslu sé mismunandi eftir stöðum erlendis, eins og við þekkjum, og því varhugavert að gera ekki nákvæmari skil á þeim lið lána stuðningssjóðsins. Upphæð sem er reiknuð fyrir þau hérlendis sé ekki tryggð námsmönnum erlendis fyrir óvæntum gengissveiflum og breytingum í íslensku samfélagi. Auk þess megi benda á hvernig staðaruppbót sé skilgreind í frumvarpinu og að skilyrði fyrir henni sem þurfi að uppfylla séu helst til óskýrar. Það er rétt að huga að þessu. Það er mikilvægt fyrir nemendur að geta stundað t.d. nám í læknisfræði erlendis vegna þess að hér er kvóti á nemendur og erfitt að komast í það nám en við þurfum að sjálfsögðu á læknum að halda.
Herra forseti. Að lokum vil ég koma aðeins inn á kostnaðarmat vegna frumvarpsins en mér finnst það neikvæðasta við frumvarpið vera sá mikli kostnaður sem kemur til með að fylgja því. Eins og segir í greinargerð með frumvarpinu, undir liðnum um kostnaðarmat, er gert ráð fyrir að viðbótarkostnaður ríkisstjórnar við rekstur sjóðsins verði 175 millj. kr., þar með talinn 25 millj. kr. stofnkostnaður á fyrsta árinu og síðan 150 millj. kr. árlega. Verkefni sjóðsins munu aukast og gert er ráð fyrir að fjölga starfsmönnum um u.þ.b. 15 manns. Þetta er náttúrlega veruleg fjölgun og kostnaðarsamt fyrir ríkissjóð, sérstaklega á þeim tímum þegar stefnir í að fara þurfi í ýmsar hagræðingar til þess að vinna niður halla ríkissjóðs sem er til kominn vegna faraldursins. Þá kemur frumvarp um aukin útgjöld og fjölgun starfsmanna um heila 15 manns. Þetta finnst mér vera mikill mínus við frumvarpið og að það hljóti að vera hægt að finna einhverjar leiðir til að ekki þurfi að fjölga verulega starfsmönnum sjóðsins vegna þessa frumvarps. Það á náttúrlega ávallt að ríkja ráðdeild og skilvirkni í meðferð almannafjár. Það er nú bara þannig að ríkisbáknið hefur þanist út í tíð þessarar ríkisstjórnar og ekki að sjá að gerðar hafi verið neinar tilraunir til þess að draga úr ríkisumsvifum. Það er reyndar þvert á það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðað. Minnug þess sem fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins sagði fyrir nokkrum árum, að við þyrftum að taka rækilega til í ríkisfjármálunum og minnka ríkisbáknið, þá horfum við hér fram á frumvarp sem felur í sér töluverða fjölgun ríkisstarfsmanna til einnar stofnunar. Ár eftir ár hefur umgjörð stjórnkerfisins á Íslandi vaxið og kostnaðurinn sem því fylgir og má ekki gleyma því að þessi kostnaður er greiddur af skattgreiðendum. Það er ekki heldur sjá að það hafi mikil verið mikil hagræðingarkrafa innan Stjórnarráðsins á síðustu árum. Ég hef áður sagt það hér úr þessum ræðustól, og bæði í ræðu og riti, að löngu tímabært sé að ráðast í uppstokkun á hinu opinbera kerfi og draga úr umsvifum þess og reyna að draga úr þeim útgjöldum sem fara til hinna ýmsu stofnana ríkisins. Þetta er eitthvað sem mér finnst að verði að fara vandlega yfir.
Það kom mér verulega á óvart, þegar ég las frumvarpið, að því fylgdi svona mikil kostnaðaraukning. Mér finnst það ekki vera nægilega rökstutt hér hvers vegna þurfi að fjölga starfsmönnum og hefði kosið að farið yrði vandlega yfir hvort ekki væri hægt að bæta úr því hvað þennan hlut varðar og starfsmönnum við lánasjóðinn yrði ekki fjölgað svona mikið. Að sjálfsögðu er mikilvægt að þessar breytingar allar gangi vel fyrir sig og að frumvarpið komist hratt og vel til framkvæmda vegna þess að það er mikilvægt. En það hljóta að vera leiðir til þess að gera þetta með ódýrari hætti. Það er lokainnlegg mitt inn í þessa annars ágætu umræðu.