150. löggjafarþing — 109. fundur,  28. maí 2020.

Menntasjóður námsmanna.

329. mál
[19:43]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ágætisandsvar og ég vil byrja á því að lýsa ánægju minni með breytingartillögur meiri hlutans þegar kemur að vaxtamálunum. Ég tel að það sé mjög skynsamleg nálgun og góð lending í því enda kom það fram í umsögnum að hagsmunaaðilar, stúdentar og fleiri, höfðu áhyggjur af þessu eins og lagt var upp með í upphafi. Ég fagna því og styð þá tillögu.

Varðandi framfærslu barna finnst mér þetta vera skynsamleg nálgun í frumvarpinu og styð hana. Ég held að það sé óþarfi, eins og hv. þingmaður nefndi réttilega, að vera að blanda saman einhverjum kerfum í þessu. Það sé ekki skynsamlegt. Það er mikil réttarbót fyrir stúdenta og námsmenn að geta fengið framfærslustyrk vegna barna og eins og ég nefndi í ræðu minni þá er náttúrlega töluvert um námsmenn sem hafa börn á sínu framfæri og því ákaflega mikilvægt að geta mætt því með einhverjum hætti. Maður veltir því fyrir sér hvers vegna það skuli ekki hafa verið gert fyrr, ég segi bara eins og er. Ég þekki það sjálfur, ég fór með fjölskylduna í nám erlendis og standa þurfti straum af kostnaði við skólagöngu barnanna og annað slíkt. Þetta er mikil réttarbót og ég fagna því sérstaklega og eins og lagt er upp með þetta ákvæði þá myndi ég segja að það þjóni ágætlega tilgangi sínum.