Menntasjóður námsmanna.
Herra forseti. Við fjöllum um frumvarp til laga um Menntasjóð námsmanna, sem er mikið framfaraskref að mínu mati og löngu tímabært að við förum hér í gegn með breytingar sem hafa verið mörg ár í smíðum. Ég held að óhætt sé að segja að margir ráðherrar séu búnir að gera atlögu að því að leggja fram frumvarp til breytinga á LÍN. Nú sjáum við hilla undir breytingar en leggjum af stað með einhvers konar óvissu, sannarlega. Við vitum ekki hversu margir koma til með að sækja í þetta nýja úthlutunarkerfi og eins og hér hefur komið fram var það orðið þannig að LÍN stóð kannski ekki undir væntingum. Námsmenn voru farnir að sækja minna og minna í sjóðinn og einhverra hluta vegna var ekki þannig um hann búið að nemendur teldu sér hag í því að sækja í hann. Að einhverju leyti er það þannig og svo þekkjum við líka að þegar atvinnuástand er gott í samfélaginu er oft minni þörf fyrir lántöku.
Það er alveg rétt, sem hér hefur komið fram, að Íslendingar vinna mjög mikið, líka með námi, og oft er það valkvætt en alls ekki alltaf. Ég get alveg tekið undir það að við þurfum að huga vel að framfærsluskilyrðunum og við reyndum að gera það í þessu máli. Við komum til með að ræða það enn frekar á milli umræðna í nefndinni hvort við getum skerpt eitthvað aðeins á orðalagi til að skilaboðin komist örugglega alla leið.
Það eru nokkur atriði sem mér finnst skipta miklu máli og meira en önnur, og hefur verið farið mismikið yfir það eins og gengur og gerist. En það sem mér finnst vera gott í þessu er að festa vextina við ákveðið hámark þótt eflaust hefðu fleiri en ég viljað hafa þetta hámark lægra. En þetta er niðurstaða sem við leggjum fram saman til að komast að einhverri málamiðlun.
Eins og segir í nefndarálitinu, svo að ég víki aftur að framfærslunni, eiga framfærslulán að duga námsmönnum sannarlega til framfærslu. Mér finnst þetta mjög ákveðið orðalag en við finnum kannski betur út úr því.
Varðandi nám samhliða vinnu kom aðeins fram í umræðum í nefndinni að það væri gjarnan verið að ýta fólki út í símenntun í síbreytilegu samfélagi, í fjórðu iðnbyltingunni eða hvað það nú allt saman heitir, og þá þyrfti fólk að geta átt kost á því að sækja í sjóðinn. En það voru sjónarmið um að það væri ekki nógu skýrt hvað varðar tegund náms og láns hvað þetta varðaði. Við leggjum til breytingar til að reyna að skýra þetta frekar. Tillagan er í raun sú að nám samhliða vinnu sé skólagjaldalánshæft fyrst og fremst, af því að það er kannski minni þörf á því þegar fólk er í vinnu. Vextirnir voru eðli máls samkvæmt mikið til umfjöllunar og þar erum við öll sammála um að afar mikilvægt sé að geta haft þá breytilega og líka að þeir keyri ekki fram úr öllu hófi. Þess vegna lögðum við til þetta hámark. En það skiptir sannarlega líka máli að gripið verði inn í ef eitthvað kemur upp eða öllu heldur ef aðstæður í samfélaginu breytast með þeim hætti að hér fer allt af stað þó að ekkert bendi til þess í augnablikinu. Þess vegna held ég að það sé gott að endurskoðunin verði eftir þrjú ár þó að kannski verði ekki komin mikil reynsla í sjálfu sér á sjóðinn. En þá sjáum við alla vega samsetningu á hópnum sem kemur til með að nýta sér þennan nýja sjóð.
Ég tel að það sé líka einmitt mikilvægt, eins og hér er lögð áhersla á, að þetta er oft fyrsta lán sem einstaklingur tekur á lífsleiðinni, að námsmenn fái skýrar leiðbeiningar og endurgjaldslausa ráðgjöf um það hvað henti þeim best því að aðstæður fólks eru auðvitað mjög ólíkar.
Eins og kom fram í andsvari mínu áðan með endurgreiðslurnar, að eftir töluverða umfjöllun í nefndinni töldum við að íslenskir námsmenn eða námsmenn sem nýta sér þann rétt sinn að fá lán hjá LÍN eða frá Menntasjóðnum sætu við sama borð og aðrir á Norðurlöndunum, þ.e. að byrja að greiða af lánunum ári síðar og ef þannig stæði á væri hægt að sækja um frestun.
Það hefur verið farið aðeins yfir aldurssamsetninguna. Það var eitt af því sem við Vinstri græn vorum svolítið skeptísk á í þessari umfjöllun. Þekkt er að konur fara oft og tíðum seinna í nám. Sú sem hér stendur er dæmi um það að fara í nám á fullorðinsárum. Ég held að sú aldurssamsetning geti skipt máli, líka í ljósi þess ástands sem við erum í núna, um leið og við erum að hvetja fólk til að fara, ekki bara í sumarnám heldur í nám vegna þess að hér er mikið atvinnuleysi og verður líklega enn meira í haust. Við þurfum því að horfa til þess að aldurssamsetningin er önnur. Þess vegna lögðum við til tiltekna breytingu vegna þeirra sem fara á næstu misserum í nám í þessum aldurshópi, að um það verði bráðabirgðaákvæði með því fororði að nemendur hafi val um að endurgreiða námslán með tekjutengingu ef þeir ljúka náminu á því ári sem þeir verða fertugir, af því að hér er grunnhugmyndin að eftir að fólk er orðið 35 ára hefur það ekki möguleika á tekjutengdri afborgun. Þetta er svona ákveðin aðlögun sem hér er verið að leggja til.
Síðan er líka bent á ákvæði til bráðabirgða varðandi ábyrgðarmannakerfið, sem er mikilvægt held ég að taka hér til, að ríkisstjórnin hefur lagt til breytingar á endurgreiðslu námslána, þ.e. að fella brott skilyrðin um að fólk sé í skilum við lánasjóðinn til að ábyrgðin falli niður. Við leggjum til að sömu ábyrgðaryfirlýsingar gildi hvort heldur er um einstakling að ræða eða fjármálafyrirtæki því að sumir hafa ekki einstakling til að ábyrgjast fyrir sig en hafa í gegnum tíðina getað leitað til fjármálafyrirtækja og fengið einhverja bankaábyrgð. Það falli þá líka undir þetta sama.
Hér er líka breytingartillaga sem ríkisstjórnin kom inn á er varðar bæði lækkun á tekjutengdum afborgunum, afslátt við uppgreiðslu á innborgun námslána, lækkun á vöxtum o.s.frv., þ.e. í gamla sjóðnum. Ég held að þetta skipti allt saman mjög miklu máli. Heilmiklir fjármunir eru hér undir, mig minnir að það séu í kringum 10–13 milljarðar sem sú breyting hefur í för með sér sem verið er að leggja til frá ríkisstjórninni.
Hér hefur líka verið svolítið talað um lánsréttinn varðandi einingafjöldann og árafjöldann. Lagt er til að hann sé 420 ECTS-einingar sem jafngildir sjö árum í námi og viðbótin er svo eitt ár í doktorsnámi. Bent hefur verið á að lánsréttur í Danmörku, þ.e. styrkur og lán, er til sex ára og í viðbót allt að 12 mánuði á lokaári. Í Svíþjóð sex ár, átta ár í Noregi og sex ár í Finnlandi. Þetta er ósköp sambærilegt þannig að ég treysti því að þetta verði í lagi. En ef við komumst að því eftir þrjú ár eða lengri tíma að við þurfum að breyta þessu þá treysti ég því að við reynum að gera það þó að þessar breytingar hafi loksins tekist og hafi verið mjög erfið fæðing.
Ég tek undir með þeim sem tala um að aukinn rekstrarkostnaður sé ansi hár, sá sem gert er ráð fyrir. Við áréttum það í meirihlutaáliti okkar að það er byggt á sviðsmyndum sem geta breyst. Það eru töluvert margir óvissuþættir, bæði hvað varðar fjölda nemenda, hvað varðar fjölda barna, hversu mikið er um greiðslu skólagjalda, afskriftir lána, hversu margir útskrifast o.s.frv. Það er auðvitað mikil fjölgun ef þú ert með 35 manns í vinnu og þarft að bæta við 15 út af nýjum lögum. Einskiptiskostnaðurinn er 25 milljónir, þ.e. stofnkostnaður, og síðan 150 milljónir árlega. Það hafa verið lagðar fram ákveðnar skýringar og í sjálfu sér hefur maður kannski ekki miklar forsendur til að meta þetta, en það er þó þannig að ef maður hugleiðir og hugsar til þess að eitthvað hlýtur að leiða til aukinnar skilvirkni og annars þegar verið er að breyta. En það er ekkert óeðlilegt við það að á fyrsta ári verði einhver umframkostnaður.
Í rökstuðningi er talað um að hver námsmaður í hinum nýja Menntasjóði eigi að fá einstaklingsmeðhöndlun, fylgjast þurfi með því hvenær hann ljúki námi, hvort samfella sé í náminu og námstímanum, hversu mörgum einingum er lokið o.s.frv. Lánasjóðurinn telur að sex starfsmenn þurfi í viðbót við þetta, sem mér finnst hreinlega vel í lagt, af því að hluti af þessu hlýtur að hafa verið innan verksviðs þess fyrirkomulags sem við erum með núna.
Síðan er sagt að fylgjast þurfi með lokun á skuldabréfum námsmanna, aukin samskipti og fræðsla þurfi að vera um lánakjörin, og það er það sem ég benti á áðan að ég tel mikilvægt að veita þessa fræðslu. En við höfum einnig bent á að hún getur verið, kannski ekki bara í eitt skipti heldur getur hún verið í formi upplýsinga á vef og svo getur hún líka að einhverju leyti verið í formi samtals. Einnig eru færð rök fyrir því að við vinnu vegna samtímagreiðslna til námsmanna, enduráætlun á lánsáætlun vegna breytinga á tekjum, fjölskylduaðstæðum og breytinga á loknum einingum eða því sem var áætlað o.s.frv., þurfi að ráða þrjá starfsmenn í ráðgjafardeild, tvo í innheimtudeild, þannig að þar erum við komin með fimm í viðbót og svo í máladeild bókara og tvo starfsmenn í tölvudeild.
Ég verð að segja og ætla að vona að það verði ekki endilega ráðist í að ráða alla þessa 15 starfsmenn strax í upphafi heldur bíði fólk eftir að sjá hver ásóknin verður í sjóðinn þó að fólk þurfi að sjálfsögðu að undirbúa sig. Ég tel mikilvægt að hann fari vel af stað og ekki verði miklir hnökrar. En ég ítreka að ég tel kannski ekki forsvaranlegt að bæta slíkum mannafla við strax á upphafsdögum sjóðsins og tel að frekar þurfi þá að bæta við reynist þess þörf.