150. löggjafarþing — 110. fundur,  29. maí 2020.

þingfundarsvæði.

[10:32]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur ákveðið, að höfðu samráði við þingflokka og með aðstoð formanna þingflokka, að frá og með deginum í dag fari þingfundir fram með hefðbundnum hætti í þingsal. Allir þingmenn geta því setið í sínum sætum og greitt atkvæði með venjubundnum hætti. Það bráðabirgðafyrirkomulag sem tekið var upp 4. maí sl. um stækkun þingfundasvæðis gildir því ekki lengur en í efrideildarsal og hliðarherbergjum verður áfram vinnusvæði fyrir þingmenn sem gefur þeim sem svo kjósa kost á að hafa rýmra um sig og fylgjast með þingfundi á skjá.

Í framhaldi af þessu vill forseti tilkynna breytingar á sætaskipan en hv. 8. þm. Norðaust., Anna Kolbrún Árnadóttir, fær sæti nr. 32 og hv. 10. þm. Reykv. s., Þorsteinn Sæmundsson, fær sæti nr. 19.