störf þingsins.
Herra forseti. Sagt er að sjaldan sé góð vísa of oft kveðin. Þess vegna ætla ég enn og aftur að gera mikilvægi nýsköpunar, tækni og vísinda fyrir samfélag okkar að umtalsefni. Íslenskt atvinnu- og efnahagslíf hefur alla tíð einkennst af fábreytni. Þar með höfum við þurft að treysta mjög á einstakar og einhæfar atvinnugreinar og sagan kennir okkur að það er ekki gott. Það veldur óþörfum sveiflum, stækkar þær og gerir áföll í þeim greinum afdrifaríkar fyrir efnahagslífið í heild og þar með fyrir almenning í landinu og þau fyrirtæki sem starfa í öðrum greinum.
Allt er þetta auðvitað dagljóst. Í hvert sinn sem við verðum fyrir áfalli í mikilvægri atvinnugrein segjum við að nú verði að skjóta fleiri stoðum undir efnahagslífið. Við megum ekki verða svona háð einni grein. Sama segja allar alþjóðastofnanir sem veita okkur ráð í efnahagsmálum. Sömu sögu segja margar skýrslur sem gerðar hafa verið. Má þar t.d. nefna skýrslu McKinsey frá árinu 2012 sem heitir upp á ensku, með leyfi forseta, Charting a Growth Path for Iceland.
Einhvern veginn fer það alltaf svo að við gleymum okkur þegar það hleypur á snærið og ein grein tekur vaxtarkipp. Nýjustu dæmin í sögu okkar er auðvitað ofvöxtur fjármálakerfisins og nú síðast gríðarlegur vöxtur ferðaþjónustunnar. Enn einu sinni stöndum við í þessum sporum. Er ekki kominn tími til að við tökum þau mál föstum tökum og hugsum til langs tíma? Þrátt fyrir að ríkisstjórnin með fulltingi Alþingis hafi stigið mikilvæg skref í þeim efnum er að mínu mati alls ekki nóg að gert. Gildir það um fjármuni sem varið er í málaflokkinn (Forseti hringir.) en ekki síður að langtímahugsunina vantar. Skilaboðin til þeirra sem geta og vilja byggja upp ný fyrirtæki sem byggja á hugviti, tækni og nýsköpun, (Forseti hringir.) eru ekki nógu skýr um að hægt sé að reiða sig á stuðning og hagstætt umhverfi (Forseti hringir.) til langs tíma. Hér verður að gera bragarbót.