150. löggjafarþing — 110. fundur,  29. maí 2020.

störf þingsins.

[10:53]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég vil við þetta tækifæri vekja athygli á og eftir atvikum kalla eftir viðbrögðum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna þess að nú tæpu ári eftir að ný lög um breytingu á ýmsum lögum sem tengjast fiskeldi voru samþykkt þann 20. júní 2019, sem ætlað var að ramma inn rekstrarumhverfi fiskeldis og þær umhverfislegu kröfur sem þeirri starfsemi er uppálagt að starfa innan, hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra enn ekki sett reglugerð sem honum var uppálagt að setja. Það veldur því að þær stofnanir sem fjalla um eldistengd mál eiga erfitt með að vinna málin áfram. Í 2. gr. nefndra laga er ráðherra uppálagt að setja reglugerð. Í 3. gr. laganna, sem ber yfirskriftina Skipting hafsvæða í eldissvæði, segir, með leyfi forseta:

„Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um skiptingu hafsvæða í eldissvæði, um auglýsingu, úthlutun eldissvæða, skilmála úthlutunar, hvað teljist hagstæðasta tilboð og afturköllun tilboðs.“

Í 7. gr. þar sem fjallað er um áhættumat erfðablöndunar er ráðherra uppálagt að setja reglugerð. Þar segir m.a., með leyfi forseta:

„Reglugerðin skal taka tillit til bestu fáanlegrar tækni og þess hvernig best verði stuðlað að sem umhverfisvænstum rekstri.“

Áfram í 11., 13., 15., 17. og 20. gr. er ráðherra uppálagt að setja reglugerð. Nú tæpu ári síðar hafa þessar reglugerðir ekki verið settar og þær stofnanir sem halda á verkefnum á grundvelli þessara laga telja sig að hluta til ekki geta unnið mál áfram vegna þessa.

Í ljósi orða forseta við upphaf umræðunnar þá hefði ég að líkindum átt að ýta við sjávarútvegsráðherra hvað þessa ábendingu mína varðar en gef mér að forseti meti svigrúm til gagnrýni á ráðherra nokkuð rúmt. Ég vil í staðinn skora á ráðherra að taka sér tak og klára vinnu við þær reglugerðir sem annaðhvort orsaka það að framkvæmdir og fjárfestingar frestast eða umhverfismál hafa ekki verið færð til þess vegar sem horft var til.