150. löggjafarþing — 110. fundur,  29. maí 2020.

störf þingsins.

[11:08]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill bæta við, vegna umræðu sem var hér í byrjun fundar um orðaskipti þingmanna í þessum lið og jafnframt vegna þess sem hv. þm. Birgir Ármannsson nefndi, að ástæða þess að forseti gerir athugasemdir við að menn víki að nafngreindum þingmönnum er sú að umræðan er lokuð. Það liggur fyrir mælendaskrá með 15 þingmönnum og þeir sem eru þannig nafngreindir eru iðulega ekki á henni. Það er alls ekki þannig að þingmenn megi ekki eiga í snörpum orðaskiptum, en það skiptir máli að þeim sem orðum er beint að eigi kost á því að koma inn í umræðuna og svara fyrir sig. Ef um er að ræða opna umræðu þar sem menn geta farið í andsvör eða bætt sér á mælendaskrá er að sjálfsögðu allt öðru til að dreifa.

Það er þetta sem forseti biður þingmenn að hafa í huga: Það skiptir máli hvort um er að ræða opna eða lokaða umræðu gagnvart því að menn geti þá borið hönd fyrir höfuð sér.