150. löggjafarþing — 110. fundur,  29. maí 2020.

stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.

811. mál
[11:45]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þetta er bara vont mál. Það bregður út af þeim tilgangi sem við fórum af stað með, að halda ráðningarsambandi, og ekki bara það, þetta hvetur til þess að fyrirtæki segi upp starfsfólki og fái að halda því sem eins konar ríkisstarfsmönnum í vinnu hjá sér í þrjá mánuði, en það er borgað af skattfé landsmanna. Það hefði verið auðvelt að taka aðra nálgun, ef menn telja að það sé nauðsynlegt að fólk eða fyrirtæki hafi svigrúm til að geta rekið starfsfólk án þess að rata sjálf í þrot. Það hefði verið hægt að gera það þannig, en þetta starfsfólk þarf að vinna eitthvað áfram og þá erum við komin með hagsmuni einstaklinganna eða hagsmuni vinnuhópsins. En nei, með þessari leið er verið að ausa út ríkisfé, við vitum ekki einu sinni hve miklu, en gríðarlega miklu. Verða það 25% fyrirtækja sem gera þetta eða 50% fyrirtækja? Við vitum það ekki. En ríkið ætlar að gera starfsfólk að ríkisstarfsmönnum fyrir þessi fyrirtæki í þrjá mánuði að því tilskildu að þeir séu reknir. Svo þegar þeir eru ráðnir aftur, eins og ASÍ hefur bent á og hv. þm. Smári McCarthy benti á í nefndaráliti sínu, er hægt að ráða þá á lægri launum. Þetta er vont mál.