150. löggjafarþing — 110. fundur,  29. maí 2020.

stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.

811. mál
[11:47]
Horfa

Smári McCarthy (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við stöndum augljóslega frammi fyrir mjög erfiðum vandamálum í rekstri fyrirtækja á Íslandi. Og það er rétt að það þarf að gera eitthvað. En ég er ósammála formanni Miðflokksins sem segir að það þurfi að gera eitthvað og það sé nóg. Við þurfum að gera rétta hluti og það er vandamálið hér. Þetta frumvarp er svolítið sú gamla pólitík að til þess að fyrirtækin megi þrífast þurfi hagsmunir almennings að víkja. Það er rangt. Rétta leiðin hefði verið sú að bæði fyrirtækin og almenningur kæmu vel út. Þar af leiðandi get ég ekki stutt þetta mál. Ég veit í rauninni ekki hvað á að gera vegna þess að hér er hreinlega verið að nálgast málið út frá röngum forsendum. Ef við hefðum farið þá leið að byggja upp ný tækifæri hefðum við verið á betri stað og þá hefði þingið mögulega getað haldið áfram að vinna saman í rétta átt að því að bæta stöðu mála eftir Covid.