150. löggjafarþing — 110. fundur,  29. maí 2020.

Menntasjóður námsmanna.

329. mál
[13:09]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil bara koma því á framfæri varðandi þessa breytingartillögu að ég tel að hér sé um misskilning að ræða. Rökstuðningurinn með breytingunni er sá að nemandi sem fer í nám erlendis í þrjú ár þurfi að koma heim og dvelja í tvö ár til að geta farið út aftur í nám og hlotið viðbótarlán. Það er ekki rétt heldur er litið á það sem samfellt nám þrátt fyrir að nemandi hafi ekki búið hér heima í tvö ár á því fimm ára tímabili. Þannig að ég held að þetta sé misskilningur af hálfu hv. þm. Helga Hrafns Gunnarssonar. Ég ræddi þetta við hann í þingræðu og hef fengið staðfestingu frá ráðuneytinu um að skilningur minn á þessu er réttur. Ef maður fer í nám erlendis og lýkur BA-gráðu eða BS-gráðu eða einhverju slíku getur maður haldið beint áfram, án þess að þurfa að koma heim, og hlotið til þess námsstyrk.