150. löggjafarþing — 110. fundur,  29. maí 2020.

Menntasjóður námsmanna.

329. mál
[13:16]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Við erum hér að fjalla um undanþágur frá kröfum um lágmarksnámsframvindu. Ég held að það væri þjóðráð ef hv. allsherjar- og menntamálanefnd myndi ræða það milli 2. og 3. umr., með öðrum álitamálum, hvort ekki sé rétt að flóttamenn og innflytjendur falli undir þær undanþágur eins og ýmsir hópar sem eiga undir högg að sækja. Þeir þurfa jafnvel að fara í viðbótarnám til að fá staðfestingu á menntun sinni og það er rétt að þeir falli undir þessa undanþágu, og nefndin mun fjalla um þetta.